Löggan kallar eftir verkfærabyltingu

Eymingja löggan. Eins og var gaman um þetta leyti í fyrra, þá er bara allur vindur úr pöpulnum og ekkert að gera hjá áhugasömum löggum nema að uppræta kannabisverksmiðjur. Sumir hafa ekki fengið að lemja neinn lengi og það er allt orðið fullt af gasbrúsum sem bíða þess að verða tæmdir.

Lögguhvuttarnir eru orðnir svo þunglyndir af aðgerðaleysi að til vandræða horfir, svo nú hafa yfirvöld gripið til þess ráðs að skora á mótmælendur í aðra umferð; verkfærabyltinguna.

Nú sitja Íslendingar uppi með ónýtt efnahagskerfi, ónýtt stjórnkerfi og ráðherra sem þvert á fyrri loforð stunda sama leynimakk og forverar þeirra. Og nú þurfa þeir sem ekki eru til í að láta það yfir sig ganga að draga fram vírklippur og járnsagir og gera sig klára í næstu uppreisn. Löggan nennir greinilega ekki neinu búsáhaldabulli lengur, þeir vilja verkfæri og vitanlega gerum við eins og löggan biður.

One thought on “Löggan kallar eftir verkfærabyltingu

  1.  ——————————————–

    stór orð! „pöpullinn“ lýtur alltaf lægra haldi? hvernig má það vera?
    ónýtt efnahagskerfi, stjórnkerfi, ráðherrar, leynimakk …
    fröken! hvað ætlarðu að gera við þessa ráðherra sem brutu loforðin?

    Posted by: agamemnon | 30.01.2010 | 2:16:18

     ——————————————–

    Pöpullinn lýtur alltaf lægra haldi vegna þess að það eru ekki nema 1 af hverjum 1000 sem hafa döngun í sér til að rísa upp. Það þarf fjölda til að standa á móti atvinnuofbelsimönnum.

    Ég get því miður ekki gert neitt við þá sem hafa svikið kosningaloforð en ef fleiri en 1 af 1000 nenntu því, þá væri hægt að koma þeim og því kerfi sem þeir vinna fyrir, frá völdum.

    Posted by: Eva | 31.01.2010 | 15:46:02

     ——————————————–

    Þú nefnir atvinnuofbeldismenn – þú átt væntanlega við stjórnmálamenn hér 🙂

    Posted by: agamemnon | 5.02.2010 | 23:40:25

     ——————————————–

    Ég var nú aðallega að hugsa um lögregluna. Stjórnmálamenn eru atvinnulygarar en beita yfirleitt ekki líkamlegu ofbeldi.

    Posted by: Eva | 6.02.2010 | 8:33:51

     ——————————————–

    En er það ekki andlega ofbeldið sem bítur verst

    Posted by: agamemnon | 6.02.2010 | 20:49:01

     ——————————————–

    Andlega ofbeldið geldir lýðinn og gerir hann ófæran um að rísa upp. Núna er t.d. hætta á því að hræðsluáróður hreki fólk til að samþykkja icesave samninginn.

    Líkamlegt ofbeldi á sér yfirleitt ekki stað fyrr en sýnt er að andlegt ofbeldi nægi ekki.

    Posted by: Eva | 7.02.2010 | 5:20:23

Lokað er á athugasemdir.