Á miðvikudeginum tókum við morguninn rólega, gengum frá bústaðnum og fórum svo að Hítarvatni. Hægt er að komast tvær leiðir að Hítarvatni og liggur önnur þeirra yfir Hítardalsheiði. Halda áfram að lesa
Á miðvikudeginum tókum við morguninn rólega, gengum frá bústaðnum og fórum svo að Hítarvatni. Hægt er að komast tvær leiðir að Hítarvatni og liggur önnur þeirra yfir Hítardalsheiði. Halda áfram að lesa
Þegar skoðunarferð um Berserkjahraun lokinni var klukkan að halla í 6 og tímabært að halda heim til að grilla. Ég hafði reyndar haldið að við gætum ekið nesið allt á einum degi en það er ekki raunhæft ef maður fer í svona langa siglingu og stoppar lengi í Bjarnarhöfn. Skítt með það, þetta var búinn að vera frábær dagur og pabbi er hvort sem er búinn að sjá Dritvík, Vatnshelli, Hellna og annað áhugavert á þessari leið. Halda áfram að lesa
Hittum Hebbu
Svo skemmtilega vill til að Hildibrandur í Bjarnarhöfn er tengdafaðir Hebbu, æskuvinkonu Borghildar. Hún var heimagangur heima hjá pabba á Hringbrautinni en býr nú í Bjarnarhöfn og að sjálfsögðu bönkuðum við upp á, rétt svona til að heilsa henni. Halda áfram að lesa
Eftir ævintýrasiglingu er nauðsynlegt að fá sér brauð og kaffi og kannski smá kex. Við fundum ágætan nestisstað undir kirkjuvegg á Stykkishólmi. Halda áfram að lesa
Í góðu veðri er gaman að skoða fallegar eyjar en ekki skemmdi það stemninguna að sjá skelfisk dreginn upp með plóg og fá meira að segja að smakka á góðgætinu.
Halda áfram að lesa
Elliðaey – myndin er af vef Wikipedia
Elliðaey
Áður en hafmeyjan Þóra í Þórishólma hvarf í hafið eignuðust þau Jón dóttur sem var nefnd Þórunn. Hún bjó í Elliðaey og þótti undarleg. Sat flestum stundum á klettasillu og spann þráð ofan í sjóinn. Sagt er að margir snældusnúðar hafi fundist fyrir neðan klettinn. Halda áfram að lesa
Öxney
Þekktustu persónur Laxdælasögu eru Guðrún Ósvífursdóttir og elskhugar hennar Kjartan Ólafsson og Bolli Þorleiksson fóstbróðir hans sem síðar varð honum að bana með sverðinu Fótbít. Laxdæla segir einnig frá því hvernig Bolli komst yfir Fótbít. Halda áfram að lesa