Kaþólska kirkjan biðst afsökunar

Kaþólska kirkjan biðst afsökunar. Þá hlýtur nú öllum að líða betur er það ekki?

Ónei! Það líður engum rassgat betur þótt kaþólska kirkjan biðjist afsökunar. Enda er opinber afsökunarbeiðni frá stofnun bara leiksýning til að róa fólk.

Stofnanir bera vissulega ábyrgð gagnvart þolendum starfsfólksins að því leyti að þeim er skylt að grípa til viðeigandi rástafana þegar upp kemst um óhæfu. Hinsvegar er það ekki stofnunin sem slík sem bregst skyldu sinni heldur eru það manneskjur.

Afsökunarbeiðni í eðli sínu persónuleg. Það er hreinlega ekki trúverðugt að ópersónuleg stofnun iðrist gjörða starfsmanna sinna. Þær persónur sem enn eru á lífi og brugðust á sínum tíma, ættu að biðja þolendurna afsökunar á sínu eigin skeytingarleysi. Allt í lagi að gera það opinberlega en þá líka augliti til auglitis. Þ.e.a.s. að því tilskildu að þeir sem í hlut eiga iðrist framkomu sinnar. Það er nefnilega heldur ekkert gagn í afsökunarbeiðni ef hugur fylgir ekki máli.

Viltu hafa rasista á Íslandi?

Í tilefni af þessum pistli:

Hvað er pláss fyrir marga rasista á landinu,  100, 1000, 10.000 eða kannski fleiri?  Meðan landrými leyfir hugsa einhverjir en hvað með okkur hina sem finnst bara ágætt að vera laus við ykkur. Hingað til hef ég ekki talið mig umburðarlynda gagnvart fávitum en mér finnst óþægilegt að sjá hversu hratt þeim fjölgar á Íslandi.

Ég á ekki í vandræðum með venjulega heimskingja en það er eitthvað við þessa miklu fjölgun ógeðfelldra kynþáttahatara sem fer í taugarnar á mér.  Þeir falla ekki eins vel í umhverfið og hinir bjánarnir.  Þeir minna mig meira á “rasistavandamálið” sem Íslendingar vilja helst ekki horfast í augu við.

Það þarf nefnilega að stýra því hverskonar fólk fær að vaða uppi á landinu.  Sú aðferð sem stjórnvöld nota í dag er að mínu mati meingölluð. Ótakmarkaður málfrelsi skíthæla sem telja sig öðru fólki æðra. Meðan t.d. vinnandi asíufólk og fólk utan Evrópu er upp á náð og miskun kerfisins komið eða háð duttlungum Alþingis.

Íslendingar þurfa að svara því hversu marga fávita þeir vilja hafa í landinu og hvernig fólk.  Það er ekki hægt að treysta á legu landsins og veðurfar.  Sú vörn virðist a.m.k. ekki virka lengur.  Þó ég nefni drullusokka eins og þig hér að ofan þá hef ég ekkert á móti heimsku fólki.  Ég vil bara hafa takmarkaðan fjölda af fávitum með fasta búsetu í landinu.

Hvar sú tala liggur er síðan eitthvað sem þarf að ræða opinberlega.

 

Aldrei segja ekki

Í dag frétti ég að það bæri vott um neikvæðan hugsunarhátt að segja ‘ég á ekki í vandræðum með að halda áætlun’ þar sem bæði orðin ‘ekki’ og ‘vandræði’ koma fyrir. Jákvæðara væri að segja ‘Ég get vel haldið áætlun’.

Voðalega leiðist mér svona rétthugsun.

https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/133972259992645