Hrútvíkkun

Svokallaðir femínistar mega eiga það að þeir eru duglegir að finna sér baráttumál. Íslenskir femnistar áttuðu sig um síðir á hinu stórkostlega vandamáli sem femínistinn My Vingren vakti athygli á fyrir nokkrum árum með herferð sem fólst í því að mynda karlmenn sem sátu gleiðir í lestum og öðrum farartækjum ætluðum almenningi. Ekki veit ég hvor My Vingren varð fyrst til þess að beita myndavél í stríðinu gegn hrútvíkkun en ég hef allavega ekki séð eldri dæmi um samskonar aðgerðir. Íslenskar mæðgur öpuðu þetta upp þegar þær voru á ferðalagi í London síðasta vetur og þar með er stríðið gegn þessu stóra og mikla vandamáli hafið hér heima.

Að mínu mati er besta framlag femínistahreyfingarinnar til samfélagsins, síðustu árin, skemmtilegar þýðingar á hugtökum. Það mun vera Hallgrímur Helgason sem fyrst notaði orðið hrútskýring yfir það sem á ensku er kallað mansplaining, um það fyrirbæri þegar karlmaður tekur að sér að reyna að leiða konu það fyrir sjónir að sjónarmið hennar, skoðanir eða tilfinningar séu órökréttar eða byggðar á misskilningi. Þótt hugtakið sé ofnotað, og oft í þöggunarskyni, eru hrútskýringar vissulega eitthvað sem flestar konur verða einhverntíma fyrir og þýðingin er frábær.

Ég hef það eftir Gísla Ásgeirssyni að María Hrönn Gunnarsdóttir eigi heiðurinn af þýðingunni hrútvíkkun á fyrirbærinu manspreading, sem hefur verið notað um þá freklegu hegðun karla að sitja gleiðir á almannafæri. Þótt vandamálið sé frekar femínasnalegt er þýðingin bráðskemmtileg og mér finnst líklegt að hún festi fljótt rætur.

Ég skrifaði um hugmyndafræðina á bak við hrútvíkkanir hér. Vandamálið er nefnilega ekki það að karlar taki of mikið pláss heldur er það stellingin sem slík sem fer fyrir bjóstið á femmunum.

Uppfært: Hér má sjá sannar baráttukonur berjast af alefli fyrir því stóra og mikla réttlætismáli að karlar læri að krossleggja fótleggina.

Eva Hauksdóttir

Share
Published by
Eva Hauksdóttir
Tags: hrútvíkkun

Recent Posts

Hvað gerðist á jóladag?

Helgisagan um fæðingu Jesú er á þessa leið: Ágústus keisari vill taka manntal og Jósef…

54 ár ago

Fréttir vikunnar – KSÍ skýrslan og ritstuldur Seðlabankastjóra

Ég var beðin um stutt fréttarant fyrir Lífið á Fréttablaðinu í dag. Þetta hef ég…

54 ár ago

Þegar málshættir afbakast

Gefum okkur að "rétt mál" sé það sem málsamfélagið kemur sér saman um. Látum andartak…

54 ár ago

Endurhæfing Skúla Gunnlaugssonar

Sumarið 2020 var þáverandi yfirlæknir Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Skúli Tómas Gunnlaugsson, sviptur starfsleyfi vegna margháttaðra afglapa…

54 ár ago

Píkubollar

Margur karlinn er svo heillaður af dindlinum á sér að hann finnur sig knúinn til…

54 ár ago

Frændi minn Michael Hauksdóttir er látinn

Árið 2014 sendi lögmaðurinn Max Gracia Kanasa i Benín mér tölvupóst í gegnum Yahoo netfangið…

54 ár ago