Categories: Kyn & klámSmælki

Hvernig þöggun þjónar kennivaldinu

Þrátt fyrir gagnrýni sína á þöggun kvenna, hika kvenhyggjusinnar ekki við að beita þöggun sjálfir þegar það hentar þeim. Staðreyndir sem benda til þess að kenningin um feðraveldið gangi ekki upp; t.d. sú staðreynd að tiltekið hlutfall kvenna beiti maka sína og börn ofbeldi eru lítt til umræðu meðal kvenhyggjusinna. Þær ganga þó lengra en svo að líta fram hjá slíkum staðreyndum því þeir sem benda á þær geta reiknað með að vera sakaðir um kvenfyrirlitningu. Fjalli fjölmiðlar um glæpi kvenna er kvartað um að illsku karlmanna séu ekki gerð nægilega góð skil. Sannleikanum er þannig hagrætt með því að beita þöggunartaktík þegar raunveruleikinn samræmist ekki þeirri hugmynd að konur séu alltaf kúgaðar.

Eini rökrétti tilgangurinn með því að hagræða sannleikanum á þennan hátt, er sá að móta nýjar grundvallarhugmyndir, sem notaðar verði til að byggja á kennivald í vísindum, siðferði og listum.

Eva Hauksdóttir

Share
Published by
Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Hvað gerðist á jóladag?

Helgisagan um fæðingu Jesú er á þessa leið: Ágústus keisari vill taka manntal og Jósef…

54 ár ago

Fréttir vikunnar – KSÍ skýrslan og ritstuldur Seðlabankastjóra

Ég var beðin um stutt fréttarant fyrir Lífið á Fréttablaðinu í dag. Þetta hef ég…

54 ár ago

Þegar málshættir afbakast

Gefum okkur að "rétt mál" sé það sem málsamfélagið kemur sér saman um. Látum andartak…

54 ár ago

Endurhæfing Skúla Gunnlaugssonar

Sumarið 2020 var þáverandi yfirlæknir Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Skúli Tómas Gunnlaugsson, sviptur starfsleyfi vegna margháttaðra afglapa…

54 ár ago

Píkubollar

Margur karlinn er svo heillaður af dindlinum á sér að hann finnur sig knúinn til…

54 ár ago

Frændi minn Michael Hauksdóttir er látinn

Árið 2014 sendi lögmaðurinn Max Gracia Kanasa i Benín mér tölvupóst í gegnum Yahoo netfangið…

54 ár ago