Afi Jói gat aldrei munað að Beggi bróðir minn héti Guðbjörn. Hann kallaði hann alltaf Berg. Það var kannski nett pirrandi fyrir Begga en ekkert stórmál. Einu sinni varð gleymska afa Jóa á nöfn þó frekar neyðarleg.
Lena hefur líklega verið svona 9-10 ára. Hún gisti hjá Afa og Ömmu yfir helgi og Afi tók hana með sér í sund á laugardagsmorgni. Nokkru síðar kom hann heim. Einn.
Amma Hulla átti ekki orð yfir það hvað karlinn var orðinn kalkaður.
–Ertu að segja mér það, Jóhann Indriðason, að þú hafir gleymt barninu inni í Laugardal? Viltu bara gjöra svo vel...
Hann hringdi korteri seinna.
– Heyrðu hérna Hulla mín… Ég sé hana nú ekki hérna svo hún er líklega ennþá ofan í lauginni. Ég þarf að láta kalla hana upp. Hvað heitir hún nú aftur stelpan?
Helgisagan um fæðingu Jesú er á þessa leið: Ágústus keisari vill taka manntal og Jósef…
Ég var beðin um stutt fréttarant fyrir Lífið á Fréttablaðinu í dag. Þetta hef ég…
Gefum okkur að "rétt mál" sé það sem málsamfélagið kemur sér saman um. Látum andartak…
Sumarið 2020 var þáverandi yfirlæknir Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Skúli Tómas Gunnlaugsson, sviptur starfsleyfi vegna margháttaðra afglapa…
Margur karlinn er svo heillaður af dindlinum á sér að hann finnur sig knúinn til…