Kyn & klám

Dræsunni ekki boðið til umræðunnar – frekar en venjulega

Í dag standa þrjú ráðuneyti að klámráðstefnu í Reykjavík. Engum sem vinnur í klám og kynlífgeiranum var boðið að tjá sig. Ástæðan mun vera sú að sálir kvenna eru staðsettar í píkunni. Konur sem hafa atvinnu af klámi og kynlífsþjónstu eru þessvegna svo stórskaddaðar á sálinni eftir allt hóriríð, að það er ekkert mark á þeim takandi. Ekki fyrr en þær eru búnar að gangast undir afmellunarmeðferð Stígamóta og tilbúnar til að veita feministahreyfingum ókeypis auglýsingu með fjölmiðlaviðtölum um allan þann hrylling sem þær hafa undirgengist. Hinar sem eru ánægðar í sínu starfi, eru áfram of skemmdar og geðveikar til að eiga nokkurt erindi í umræðuna.  Pye Jacobsson lýsir viðhorfi yfirvalda til kynlífsþjóna ágætlega hér:

Heiðursgestur á þessari ráðstefnu er sjálffræðingurinn og kvenhyggjukonan Gail Dines. Hún telur eins og svo margir aðrir kvenhyggjusinnar að ungir menn hermi eftir öllu sem þeir sjá í klámmyndum og klám sé þessvegna ein helsta orsök ofbeldis gagnvart konum. Að vísu hefur enginn getað bent á eina einustu rannsókn sem stenst vísindalegar kröfur, sem staðfestir orsakasamband milli klámneyslu og ofbeldishneigðar en það þarf ekki neinar rannsóknir til, þetta er bara nokkuð sem dólgafeministar vita í hjarta sínu.

Gail virðist reyndar ekki hafa neinar lausnir á þessu stórkostlega vandamáli þótt starf hennar felist í því að velta sér upp úr ofbeldisklámi og kynna það yfir blessuðu yfirvaldinu, ásamt sínum eigin fabúleringum um áhrif þess. Í myndbandinu hér að neðan stingur hún upp á því að klámframleiðendur verði lögsóttir fyrir þann skaða sem þeir valda en hvernig í ósköpunum á að meta þann skaða, það veit hún auðvitað ekki. Hún segist alls ekki vilja fara þá leið að setja lög sem takmarka tjáningarfrelsið.

Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Hvað gerðist á jóladag?

Helgisagan um fæðingu Jesú er á þessa leið: Ágústus keisari vill taka manntal og Jósef…

54 ár ago

Fréttir vikunnar – KSÍ skýrslan og ritstuldur Seðlabankastjóra

Ég var beðin um stutt fréttarant fyrir Lífið á Fréttablaðinu í dag. Þetta hef ég…

54 ár ago

Þegar málshættir afbakast

Gefum okkur að "rétt mál" sé það sem málsamfélagið kemur sér saman um. Látum andartak…

54 ár ago

Endurhæfing Skúla Gunnlaugssonar

Sumarið 2020 var þáverandi yfirlæknir Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Skúli Tómas Gunnlaugsson, sviptur starfsleyfi vegna margháttaðra afglapa…

54 ár ago

Píkubollar

Margur karlinn er svo heillaður af dindlinum á sér að hann finnur sig knúinn til…

54 ár ago

Frændi minn Michael Hauksdóttir er látinn

Árið 2014 sendi lögmaðurinn Max Gracia Kanasa i Benín mér tölvupóst í gegnum Yahoo netfangið…

54 ár ago