Kyn & klám

Hver meinar konum að tjá sig á netinu?

Ég er að verða ponkulítið leið á þeirri goðsögn að konur hafi slæmt aðgengi að fjölmiðlum. Ég dreg líka í efa að kvennakúgun og yfirgangur karla sé stóra skýringin á minni pólitískri þátttöku kvenna en karla.Ef konum væri á einhvern hátt meinuð stjórnmálaþáttaka og aðgengi að fjölmiðlum eða allavega gert erfitt fyrir, þá hlyti hlutfall þeirra sem skrifa og taka þátt í umræðum á netinu að vera hærra. En er það svo?

Fyrir mörgum árum skoðaði Sigurður Hólm kynjahlutfall á pólitískum vefritum.

Hann birti annan pistil um sama efni í dag.

Ég kíkti til gamans á þá miðla sem ég hef fylgst með undanfarin ár. Ég er ekki búin að telja nákvæmlega eða reikna út hlutföll en lausleg skoðun leiddi mig að eftirfarandi niðurstöðum:

Eggin: Karlar skrifa.

Gagnauga: Karlar skrifa.

Kryppan: karlar.

Rósturpennar skrifa ekki undir nafni.

Nei-ið er dáið, því miður, flestar greinar þar eru nafnlausar.

Svartsokka hefur verið óvirk undanfarið og getur ekki höfunda en ég býst við að konur séu í meirihluta þar.

Múrinn, besta vefrit allra tíma er löngu dáinn, þar voru karlar í meirihluta og skrifuðu fleiri greinar en konurnar.

Svipan getur ekki alltaf höfunda en þegar það er gert þá er pistillinn oftar en ekki eftir karlmann.

Smugupennar
: Karlar í meirihluta og skrifa að jafnaði fleiri greinar. Reynt er að gæta jafnvægis meðal fastra penna og hallar þó aðeins á konurnar og aðsendar greinar eru mun oftar eftir karlmenn.

Deiglan: Karlar fleiri og afkastameiri

Tíkin er á fb. Lítur út eins og fréttatenglasafn. Þar er ekki neinn penni eða nein umræða,allavega engin sem er sýnileg öðrum en þeim sem ‘læka’ síðuna.

Ekki veit ég hvernig á því stendur en skrif karla virðast líka vinsælli en skrif kvenna. Af 10 vinsælustu bloggurum blogggáttarinnar, þegar þetta er skrifað, eru 9 karlmenn. Af 5 vinsælustu færslunum eru 4 eftir karlmenn og af 5 vinsælustu færslunum á fb (skv. blogggátinni) eru 4 eftir karlmenn.

Ég held ekki að spurningin sé sú af hverju fjölmiðlar og pólitískir flokkar haldi konum niðri, heldur frekar hversvegna konur hafi minni áhuga á pólitík en karlar og hversvegna þær skrifi minna. Það er allavega ekki vegna þess að þær hafi ekki aðgengi að internetinu.

Opnumynd: StartupStockPhotos, Pixabay

Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Hvað gerðist á jóladag?

Helgisagan um fæðingu Jesú er á þessa leið: Ágústus keisari vill taka manntal og Jósef…

54 ár ago

Fréttir vikunnar – KSÍ skýrslan og ritstuldur Seðlabankastjóra

Ég var beðin um stutt fréttarant fyrir Lífið á Fréttablaðinu í dag. Þetta hef ég…

54 ár ago

Þegar málshættir afbakast

Gefum okkur að "rétt mál" sé það sem málsamfélagið kemur sér saman um. Látum andartak…

54 ár ago

Endurhæfing Skúla Gunnlaugssonar

Sumarið 2020 var þáverandi yfirlæknir Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Skúli Tómas Gunnlaugsson, sviptur starfsleyfi vegna margháttaðra afglapa…

54 ár ago

Píkubollar

Margur karlinn er svo heillaður af dindlinum á sér að hann finnur sig knúinn til…

54 ár ago

Frændi minn Michael Hauksdóttir er látinn

Árið 2014 sendi lögmaðurinn Max Gracia Kanasa i Benín mér tölvupóst í gegnum Yahoo netfangið…

54 ár ago