Kyn & klám

Snilldaraðgerð

Jamm. Um að gera í bullandi atvinnuleysi að eyðileggja möguleika nektardansmeyja og annarra kvenna í kynlífsþjónustu, á því að hafa ofan í sig öðruvísi en í gegnum umboðsmann sem hefur sambönd við stórlaxa, smákrimma og aðra sem er sama hvaða lög gilda í landinu.Þessi löggjöf mun alveg fæla karla frá því að kaupa sér kynlífsþjónustu. En aðeins þá karla sem eru löghlýðnir og tillitssamir og þá sem leita í svona þjónustu vegna einmanaleika eða sérþarfa.  Óreglumenn og fautar munu hinsvegar glaðir borga einhverjum öðrum karli myndarlega upphæð sem færi í vasa stúlkunnar ef hún ætti einhverja möguleika á að útvega sér viðskiptavini sjálf. Feministar, þið eruð fávitar.

Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Hvað gerðist á jóladag?

Helgisagan um fæðingu Jesú er á þessa leið: Ágústus keisari vill taka manntal og Jósef…

54 ár ago

Fréttir vikunnar – KSÍ skýrslan og ritstuldur Seðlabankastjóra

Ég var beðin um stutt fréttarant fyrir Lífið á Fréttablaðinu í dag. Þetta hef ég…

54 ár ago

Þegar málshættir afbakast

Gefum okkur að "rétt mál" sé það sem málsamfélagið kemur sér saman um. Látum andartak…

54 ár ago

Endurhæfing Skúla Gunnlaugssonar

Sumarið 2020 var þáverandi yfirlæknir Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Skúli Tómas Gunnlaugsson, sviptur starfsleyfi vegna margháttaðra afglapa…

54 ár ago

Píkubollar

Margur karlinn er svo heillaður af dindlinum á sér að hann finnur sig knúinn til…

54 ár ago

Frændi minn Michael Hauksdóttir er látinn

Árið 2014 sendi lögmaðurinn Max Gracia Kanasa i Benín mér tölvupóst í gegnum Yahoo netfangið…

54 ár ago