-Finndu nafnorð sem byrjar á ó, sagði Lærlingurinn.
Mér vafðist tunga um tönn. Nóg til af ó-orðum en þau sem komu fyrst upp í hugann voru lýsingar- og atviksorð og oft var ó-ið bara forskeyti. Ósama. Ég reiknaði ekki með að hann ætti við sérnafn. Ósómi, ótti, ógn, ósk, órar… Ég var viss um að hann væri að leita að hlutstæðu orði en flest ó-orð virtust tilfinningaþrungin.
–Órangútan? sagði ég hálf vandræðaleg. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir merki: málnotkun
Býsn
Orðið býsn er skemmtilegt. Orðsifjabókin gefur nokkrar skýringar á því. Sú sem ég fíla best er fornsaxneska orðið „ambusni“ og gotneska orðið „anabusns“ en þau merkja boðorð. Og hvernig tengist svo býsn og borðorð kann einhver að spyrja. Mín skýring er þessi: Halda áfram að lesa