Þegar Darri var lítill hélt hann því staðfastlega fram að hann fengi aldrei neitt að borða nema afganga. Þótt ég kannist reyndar ekki við að hafa átt stórfelld viðskipti við afgangabúðir er sannleikskorn í þessari fullyrðingu. Ég elda oft ríflega og nota svo „afganginn“ í annan rétt daginn eftir. Ekki til að spara vinnu, heldur af því að ég finn oft fyrir fyrir knýjandi þörf til að elda meira en við borðum. Það er náttúrulega bilun en geðveiki er hluti af lífinu svo mitt fólk verður bara að lifa við stöðuga afgangamatseld. Halda áfram að lesa
Baukablæti
-Sjáðu hvað ég fann innst í eldhússskápnum! sagði ég, fagnandi.
-Nei sko, fannstu einn baukinn enn, sagði Eynar, það var mikil hamingja.
-Ég get sett baunirnar í þennan.
-Já en eru skáparnir ekki fullir af tómum döllum og baukum sem þú hefðir getað notað undir baunir?
-Jú en ég vil geyma þá.
-Nú? Af hverju?
-Svo sé hægt að setja eitthvað í þá. Halda áfram að lesa
Nei, því miður
Allar 350 skóbúðirnar í miðborg Glasgow eru troðfullar af sandölum sem allir eiga það sameiginlegt að vera með sóla á þykkt við flatkökur og álíka sveigjanlega og ofnplötur. 90% þeirra eru auk þess alsettir pallíettum, glerperlum og plastblómum. Í dag fann ég loksins það sem mig vantaði en áður fór ég í ekki færri en 20 skóbúðir og ég er ekki að grínast; neðangreint samtal er ekki einu sinni fært í stílinn.
Afgreiðslustúlkan: Get ég aðstoðað?
Eva: Það vona ég. Ég er að leita að sandölum sem eru ekki með neinu glitrandi skrauti og betri botni en þessir hérna. Það þarf að vera hægt að ganga á þeim.
Afgreiðslustúlkan: Því miður erum við ekki með neina skó sem hægt er að ganga á.
Innst inni …
Feitabollan sívinsæla Sigurjón digri, gekkst í dag undir skurðaðgerð á stórutá. Mun ástæðan vera sú að látinn tvíburabróðir Sigurjóns, Gúllimann gildi, hafði tekið sér bólfestu í aukatá sem Sigurjóni hafði vaxið hin síðari ár og var tekinn upp á því að éta í gegnum hann.
„Innst inni hef ég aðeins tíu tær en Gúlllimann var farinn að vaxa út úr stórutá. Ég hefði sko samt alveg leyft Gúllimann bróður að hanga á löppinni ef hann væri ekki svona helvíti ódannaður í veislum. Það er svolítið svona ósmekklegt að vera með lappirnar uppi á borði í fermingarveislum og hann tók engu tiltali, þannig að það var ekki um annað að ræða en að kötta á hann“ sagði Sigurjón í viðtali við Pistilinn.
Sigurjón segist þrátt fyrir allt vera þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast Gúllimann en hann náði upphaflega sambandi við hann í gegnum samskiptavefinn facebook sem að sögn Sigurjóns virkar mun betur en andaglas.
Sigurjón digri gekk undir nafninu Grjóni spaghetti áður en Gúllimann bróðir tók upp á því að neyða hann til að gúlla í sig mat. Hér eru þeir bræður í náttfatapartýi og búnir að éta gestgjafann út á gaddinn.
Grill
„Og hvað er helst í fréttum á Íslandi, svona fyrir utan forsetaframboðið?“ spurði gesturinn kurteislega og handlék grillspjótið.
Ég hugsaði mig aðeins um. Sagði honum svo að Ríkissjónvarpið hefði talið það helst fréttnæmt að fáráður nokkur hefði látið flytja 25 tonna grjót á milli landshluta. Halda áfram að lesa