Fúsi flakkari

Afi og amma tóku mig með sér í útilegu inn í Landmannalaugar. Vinafólk þeirra var með í ferðinni en þau voru ekki með börn. Ég var vön að una mér ein, fyrirferðarlítil og ólíkleg til að fara mér að voða, svo ég var ekki undir ströngu eftirliti fyrsta daginn. Halda áfram að lesa

Kallinn með dauðablettinn

skalli-688x451

Afi og amma áttu vin sem mér fannst athyglisverður. Hann talaði skringilega og á nauðasköllóttum hausnum á honum var dæld eins og á höfði ungbarns, nema á öðrum stað. Ég vissi að börn fæddust með svona op á milli höfuðbeinanna og að sá hluti höfuðsins var svo viðkvæmur að það gat verið stórhættulegt að snerta hann. Halda áfram að lesa

Eskimóaskíturinn

Ég held að ég hafi verið 8 ára þegar lítill strákur af inúítaættum var gestkomandi í þorpinu í nokkra daga. Einhverju sinni var ég að leika mér við heimili skólasystur minnar ásamt fleiri krökkum og við heyrðum köll berast úr næstu götu, það var greinilega verið að stríða einhverjum. Ein stelpnanna spratt á fætur, svona líka glöð.

Halda áfram að lesa