Mér er farið að leiðast heimsósómarausið í unga fólkinu. Þessa dagana hamast netverjar við að deila myndum af hópum fólks sem er að skoða snjallsímana sína, ásamt harmkveinum um það hvað þetta sé nú allt hræðilegt; fólk er bara hætt að eiga samskipti, heimur versnandi fer og allt það. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir flokkinn: Menning og listir
Að hemja gredduna í gamla fólkinu
Breskir heimilislæknar hafa nú uppgötvað, sér til mikillar undrunar, að kynlíf viðgengst meðal fólks yfir fimmtugu. Og ekki nóg með það heldur hefur undanfarið borið á kynferðislegri ævintýragirni meðal eldri borgara. Halda áfram að lesa
Jesúbarnið tosar í tillann
Fjölskyldan helga, eftir Paolo Veronese (1528–1588)
Fórum á safn í dag og sáum urmul af hrikalega ófríðum englum, heilögum meyjum og öðru fólki sem hefði þurft á fótósjoppu að halda. Það eftirminnilegasta er þessi mynd. Ég minnist þess ekki að hafa áður séð mynd af Jésúbarninu toga í tillann á sér. Þótt hann hljóti að hafa gert það eins og önnur sveinbörn. Halda áfram að lesa
Skemmtileg skilti
Á netinu er að finna urmul mynda af óvenjulegum götuskiltum. Því miður fylgir ekki alltaf sögunni hvar myndirnar eru teknar og oft rennir mann í grun að hann Fótósjoppmundur hafi komið við sögu.
Mér skilst að þetta skilti sé í Danmörk en nánari staðsetningu veit ég ekki Halda áfram að lesa
Viðtökurnar við SCUM
Valerie Solanas
Ég var að lesa SCUM, fyrst nú, hef aldrei lesið ávarpið í heild áður. Það væri áhugavert að sjá viðbrögðin ef einræðu um ógeðslegt eðli og innræti kvenna yrði hampað sem listaverki.
Af hverju hef ég á tilfinningunni að Andspyrna myndi ekki hefja til skýjanna verk sem talaði um konur sem óværu og tíundaði það hvernig þær hafa mergsogið karlmenn bæði tilfinningalega og fjárhagslega, haldið þeim í margskonar ánauð, kallað fram allt það versta í þeim, hindrað þá í því að nýta hæfileika sína og í raun eyðilagt heiminn. Það er ekkert erfiðara að rökstyðja það viðhorf en sorann sem Valerie Solanas lét frá sér.
Það er út af fyrir sig athyglisvert að mitt í allri umræðunni um hlutgervingu kvenna og endalausa niðurlægingu þeirra af hálfu karlmanna, sé hatursáróðri í garð karlmanna lýst sem hressum og kjaftforum. Hvaðan kemur annars sú hugmynd að ef kona hefur orðið fyrir kynferðisofbeldi þá hafi hún þar með leyfi til þess að dreifa skít? Ég sé ekki fyrir mér að það fólk sem mælir þessu bót myndi hampa sambærilegum sora í garð t.d. svartra manna, með þeim rökum að höfundur hefði orðið fyrir nauðgun af hálfu svertingja.




