Ég er búsett erlendis en þarf helst að hafa bankareikning á Íslandi. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir flokkinn: Hún ryksugar og hlær
Jólaðu heimilið á 10 mínútum

Jólagjafir sem gera foreldra brjálaða
Í þessum pistli benti Steinunn Ólína á nokkur dæmi um gjafir sem ætti að forðast að gefa börnum. Reyndar eru þetta heppilegar gjafir ef markmiðið er að gera foreldrana brjálaða. Halda áfram að lesa
Sukkjöfnunarsúpa
Í gær bjó ég til blómkálssúpu. Notaði mjólk og kartöflur í staðinn fyrir rjóma. Það er reyndar alls ekki nauðsynlegt að nota neitt meira en kálið sjálft ef maður á góðan blandara en maður verður fljótt svangur ef er engin næring í súpunni.
Sukkjöfnunarkálbögglar
Mér tókst þokkalega upp með afgangasukkjöfnunarmáltíð gærkvöldins en uppistaðan í henni voru smjörbaunir og hvítkál.
Hvítkál er ekkert sérstaklega spennandi matur en það er hitaeiningasnautt og ódýrt, geymist lengi og bragðið er frekar hlutlaust. Það er fínt að nota það í súpur og pottrétti, eða skera það í fínar ræmur og steikja í smjöri eða ólívuolíu ásamt öðru grænmeti. Kál lyktar illa ef það er ofsoðið og verður þá slepjulegt áferðar og bragðverra en ef maður gætir þess að ofsjóða það ekki er það alveg ágætt. Það er líka sniðugt að nota það í kálböggla því það ofsoðnar síður ef maður klárar eldunina í ofni. Halda áfram að lesa
