Ég hef gaman af orðum sem tákna tvennt ólíkt. Orðið ‘hljóð’ er sennilega undarlegasta orð íslenskunnar því það táknar í senn hávaða og þögn. Hvernig á að útskýra svona rugl fyrir nýbúum? Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir flokkinn: Ástkæra ylhýra
Manna
Eva: Þessi grautur sem er svo oft á elliheimilinu, mannavælling, úr hverju er hann eiginlega?
Hulla: Er hann ekki bara úr mannakornum?
Jafnvægisstilling
Eftir allan þann hroða af snyrtivörubæklingum sem ég hef prófarkarlesið undanfarið, á ég erfitt með að bera á mig krem án þess að efast um gáfur mínar. Ég hef alltaf haldið að tilgangurinn með kremi væri sá að mýkja húðina og styrkja. Nú veit ég að tilgangur krema er raunverulega sá að „veita aðstoð fyrir þreytta húð“ og koma á jafnvægi milli sálar og líkama.
Gátur
Nýtt spakmæli
Í dag samdi ég nýtt spakmæli:
Drag fyrst fjárhirðastafinn úr þínu eigin rassgati og þá geturðu beygt þig til að draga tannstöngulinn úr boru bróður þíns.
Spakmæli þetta tileinka ég Rúdolf. Ég man ekki hvers son hann er en mun framvegis kalla hann Rúdolf kústskaft.
