Konan sem kláraði smjörið

Myndin er skjáskot úr myndbandi (youtube.com/watch?v=2WBRloSIEf8)

Mig dreymdi að ég hefði gefið út ljóðabók sem hét Konan sem kláraði smjörið og var svo framúrstefnuleg að ég skildi ekki orð í henni sjálf. Ég hafði einhverjar efasemdir um að hún myndi seljast í bílförmum en vissi að ég var dottin í lukkupottinn þegar Gísli Ásgeirsson tók upp á því að auglýsa hana í Costco hópnum.

Ég sagði frá draumnum á Facebook (þegar ég var vöknuð semsagt) og Gísli Ásgeirsson svaraði að bragði

„Samkvæmt draumheimildum mínum (sem ég tel næsta öruggar) er þetta fyrsta ljóðið í bókinni.

Mest er hún fyrir fjörið
og fyllir helst á sér rörið
kátínan dafnar
því kílóum safnar:
Konan sem kláraði smjörið.“

Himnasíminn

Kvennablaðið leitar að sálmaskáldi því sem svo orti og aðrar upplýsingar um þennan sálm, Himnasíminn, eru einnig vel þegnar. Mér skilst að hann hafi verið sunginn við sama laga og Fósturlandsins freyja en síðasta lína hvers erindis með tilbrigði. Halda áfram að lesa

Íslenskir ostar eru skyldari tyggjói en osti

Ég gerði mér ekki grein fyrir því fyrr en ég flutti til útlanda hvers konar drasl íslenskir brauðostar eru.  Ostur er reyndar rangnefni, þeir eiga meira skylt við gúmmí. Og nei, ég er ekki að tala um gerviost sem er seldur sem pizzuálegg heldur þetta rusl sem er kallað brauðostur, góðostur, skólaostur gauda o.s.frv. Halda áfram að lesa

Sjálfsmorðsþjónustan – ný verðlaunakvikmynd

Þorkell Ágúst Óttarsson er íslenskur kvikmyndaáhugamaður búsettur í Noregi. Hann hefur þrátt fyrir takmörkuð fjárráð gert fjölda stuttmynda og hefur nú náð þeim árangri að fyrsta mynd hans í fullri lengd Suicide Service var valin besta myndin í alþjóðlegu kvikmyndasamkeppninni The Monkey Bread Tree, auk þess sem hann var tilnefndur til verðlauna fyrir bestu kvikmyndatökuna. Halda áfram að lesa