Martraðir bernsku minnar snerust um hyldýpi. Að detta fram af björgum, niður um holræsi, ofan í skurð. Í draumunum voru mamma mín og amma alltaf nálægar en þær björguðu mér ekki. Stundum ýttu þær mér fram af brúninni. Ég vaknaði hljóðandi og kaldsveitt en neitaði að tjá mig um efni martraðarinnar. Halda áfram að lesa
Greinasafn eftir:
Freudian slip
Gerði mig seka um freudian slip í dag. Ætlaði að skrifa „órökstudd fullyrðing“ en varð það á að skrifa „órökstudd fullnæging“. Ég er nefnilega þessi sem vil að hlutirnir meiki sens og hef engan áhuga á fullnæginu sem ekki á við góð rök að styðjast. Reyndar má til sanns vegar færa að rakalaus fullnæging sé ekkert sérlega góð. Halda áfram að lesa
Augljóslega
Samkvæmisleikur
Hér er hugmynd að skemmtilegum samkvæmisleik. Halda áfram að lesa
Stal amma hönnun Baldrúnar og Rebekku eða stálu þær frá ömmu?
Þegar ég var lítil prjónaði amma Hulla æðislega barnavettlinga. Þeir voru með klukkuprjónssmokk sem náði nógu hátt upp á upphandlegginn til að koma í veg fyrir að úlnliðurinn væri óvarinn milli vettlings og úlpuermar og nógu víður til að hægt væri að nota hann utan yfir peysuermi. Halda áfram að lesa



