Ópólitískur forsetaframbjóðandi í leðjuslag

Forsetaframboð einhvers ópólitísks sjónvarpsmanns er í uppnámi, þarsem hann gleymdi hvar hann faldi páskaeggin.

„Hugmyndin var að skrifa framboðsræður upp úr málsháttunum og móta þannig heildstæða stefnumörkun í sjálfbærri menningarþróun á lýðræðisgrundvelli, en nú erum við búin að leita að páskaeggjunum síðan á sunnudagsmorgun og þau bara finnast ekki“ sagði frambjóðandinn í samtali við Pressuna

jólasveinar

jólasveinar Hurðaskellir og hinn frambjóðandinn velta sér upp úr gúanói í fjörunni við Álftanes nú í morgun.

Frambjóðandinn er þó síður en svo af baki dottinn og hefur nú skorað á aðra frambjóðendur í leðjuslag. Tók hann þokkalega á frambjóðandandanum Hurðaskelli nú í morgun. Hurðaskellir hefur sem kunnugt er þreytt leðjuslag margsinnis áður en fengið útihurðina beint í smettið þegar hann bankaði upp á á Bessastöðum til að komast í sturtu eftir slaginn.

 

Málfarsúrræði

Nýyrðasmíð er áhugaverð, skemmtileg, góð. Nýir tímar kalla á ný orð og það er gaman að auðga málið með góðum nýyrðum, vel heppnuðum tökuorðum og endurvinnslu á úreltum orðum.

Það gladdi því viðkvæma málkennd mína þegar ég sá hið dásamlega orð langtímabúsetuúrræði, notað í frétt um aðstæður heimilislausra. Hversvegna að nota jafn fábreyttan orðaforða og húsnæði, dvalarstaður, híbýli, vistarvera, heimili, skjólshús, bústaður, íverustaður, gististaður og athvarf, þegar mögulegt er að nota hið stórkostlega vanmetna orð úrræði?

Ég legg til að sett verði á laggirnar svokölluð úrræðanefnd og verði hlutverk hennar að finna og útbreiða ýmis málfarsúrræði með áherslu á lausnir annarsvegar og úrræði hinsvegar. Úrræðanefnd gæti lagfært ýmsar ambögur og sett úrræðalausnir í staðinn. Greiðslufrestur yrði þannig frestunarúrræði, fæðingar yrðu barneignalausnir, brandari yrði spaugsemisúrræði og brauðrist yrði ristabrauðslausn.

Helst þyrfti úrræðanefnd að bjóða upp á heildrænar máfarslausnir með heildstæðum nýyrðaúrræðum.

 

Einar í forsetaframboð

„Ég hef lengi átt mér þann draum að auka siðgæði þjóðarinnar“ segir Einar Sauðkrók, sem tilkynnti framboð sitt til forsetaembættis í dag. Einar er sem kunnugt er hættur í Vítisenglum og hyggur nú á frama á öðrum vettvangi.

Helstu markmiðin sem Einar mun vinna að í valdatíð sinni eru að uppræta vímuefni, klám og þágufallssýki að ógleymdri skipulagðri glæpastarfsemi og annarri framsóknarmennsku.

„Það er náttúrulega þessi skipulagða glæpastarfsemi sem er mesta vandamálið. Ég vil bara banna hana alfarið. Ég hef reynslu af þessu sjálfur og get staðfest að þetta er bara tómt rugl, það er miklu meira upp úr óskipulagðri glæpastarfsemi að hafa. Og svo er það náttúrulega klámvæðingin, mér skilst að þeir séu enn að selja Cockburns í ríkinu, það þarf sterkan leiðtoga til að takast á við slíkan ósóma á krepputímum“ segir Einar.

Þess má geta að Einar tapaði í lottóinu á dögunum og er talið víst að það sé ríkisstjórinni að kenna.

Jesus Use Me

Englakórinn hefur lýst yfir stuðningi við framboðið og vinnur nú að útgáfu geisladisks því til styrktar. Meðal laga á disknum er hinn klassíski sumarsmellur Skín við sólu Skagafjörður, en Einar er einmitt ættaður að norðan.

Ofurstirni skeit næstum á sig

Ofurstirni segir frá því á fésbókarsíðu sinni í dag að því hafi orðið brátt í brók eftir röð einkennilegra óhappa sem víst má telja að séu runnin undan rifjum ríkisstjórnarinnar.

batmanToilet_nlewis039

Ekkert smá súrt sem gerðist fyrir mig í gær.  Ég fór út í sjoppu til að kaupa happaþrennu. Á leiðinni yfir götuna var næstum keyrt mig niður. Þegar ég kom heim, fattaði ég að ég hafði læst mig úti.  Það eru sko tvær dyr á húsinu og ég ætlaði að gá hvort dyrin fyrir bak við hús var hægt að opna. Það var líka læst en mér tókst að skríða inn um rúðuna. Þá fattaði ég að ég var búinn að fá magapest með 39 kommu hita en sem betur fer komst ég á  hásætið áður en það varð stórslys.