Eins og allir vita nú orðið eru kolvetni frá Kölska. Einnig ætti flestum að vera orðið ljóst að dýraafurðir eru frá djöflinum. Þeir eru kannski færri sem vita að eldaður matur er frá andskotanum sjálfum. En látið ekki hugfallast. Það er vel hægt að lifa heilbrigðu og gífurlega hamingjusömu lífi með lágkolvetnaveganhráfæðinu. Halda áfram að lesa
Greinasafn eftir:
Jarðarför á facebook
Í nótt dreymdi mig að íslenskur tónlistarmaður sem leit út eins og Mugison en var samt einhver annar, hefði látist af slysförum í útlöndum.
Þar sem reglugerð Landbúnaðarráðuneytisins heimilaði ekki innflutning á hráu kjöti var ekki hægt að flytja líkið heim og facebook logaði af skítkasti út í Jón Bjarnason.
Ættingjarnir neyddust til að grafa tónlistarmanninn, sem reyndist vera bróðir Bjarkar Guðmundsdóttur, í útlöndum. Ekki þótti raunhæft að reikna með að allir sem vildu kveðja hann færu utan til þess að vera við jarðarför svo þessvegna var ákveðið að útförin færi fram á facebook.
Þetta gekk ágætlega fyrir sig í megindráttum en mér fannst samt ægilega kjánalegt að sjá gula grátkalla og endalausar raðir af bleikum hjörtum á veggnum.
Þegar ég vaknaði dæsti ég yfir ruglinu sem fer fram í hausnum á mér í svefni. Ég er samt ekkert viss um að jarðarfarir á facebook séu langt undan.
Afi dálítið utan við sig
Afi Jói gat aldrei munað að Beggi bróðir minn héti Guðbjörn. Hann kallaði hann alltaf Berg. Það var kannski nett pirrandi fyrir Begga en ekkert stórmál. Einu sinni varð gleymska afa Jóa á nöfn þó frekar neyðarleg. Halda áfram að lesa
Viltu gefa kærustunni dýraskartgripi?
Þessir eru víst að reyna að vera ægilega sniðugir en vinkonurnar kunna greinilega ekki að meta dýra-skartgripi í Tiffanys öskjum.
Ríkisstjórnin tilnefnd til Steingrímunnar
Þjóðaratkvæðagreiðslur eru skref í átt að lýðræði. Það er þó til lítils að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu ef ekkert er gert með niðurstöðu hennar.
Helstu rökin gegn þjóðaratkvæðagreiðslum eru þau að almúganum sé ekki treystandi fyrir mikilvægum ákvörðunum. Við þurfum mannvitsbrekkurnar 63 sem sitja á Alþingi til þess að passa upp á okkur. Ef málum er skotið til þjóðarinnar gætu alkóhólistar, glæpamenn og kjánar haft áhrif á niðurstöðu, ólíkt því sem gerist í þinginu.
Nú hefur mbl.is upplýst okkur um að stjórnarflokkarnir séu hættir við að koma stjórnarskrármálinu í gegnum þingið. Í fyrstu hélt ég að þetta væri bara moggalygi en stjórnarliðar þegja þunnu hljóði og ég held ekki að skýringin sé sú að þeir séu allir uppteknir við að baka vatnsdeigsbollur.
Árið 2011 sæmdi vefritið Gagnauga Ögmund Jónasson viðsnúningsverðlaununum Steingrímunni. Tilefnið var sá gagngeri viðsnúningur Ögmundar í afstöðu til alræðishyggju sem birtist í skyndilegri hrifningu hans á þeirri hugmynd að veita lögreglu heimildir til að njósa um fólk sem ekki er grunað um að hafa framið glæp af neinu tagi.
Ég tilnefni hér með ríkisstjórnina til Steingrímunnar 2013 fyrir viðsnúning sinn í afstöðu til lýðræðis.
Athugið að þetta snýst ekki bara um stjórnarskrána heldur ekki síður lýðræðismál. Þeir sem ekki eru hrifnir af stjórnarskrárfrumvarpinu fagna kannski í dag en þeir sem styðja valdníðslu í þessu máli gætu skipt um skoðun næst þegar kemur til álita að skjóta máli til þjóðarinnar.