Ég horfi mjög sjaldan á sjónvarp og það var ekki fyrr en í kvöld sem ég sá þessa margumtöluðu Sylvíu Nótt. Fimm mínútur dugðu mér alveg. Hvaða eymdarinnar menningaramlóðar hafa eiginlega húmor fyrir þessu? Maður fær á tilfinninguna að þetta sé stelpa sem langaði alltaf að verða Spaugstofan þegar hún yrði stór en hafði bara ekki hæfileika.
Sennilega er hugmyndin með þessum þáttum sú að tékka á því hvernig venjulegt fólk bregst við þegar fáviti er látinn taka viðtal við það. Niðurstaðan kemur ekki á óvart; flestir reyna sennilega bara að halda andlitinu og bíða eftir að þessu bulli ljúki án þess að þeir þurfi að sýna verulegan dónaskap. Athyglin beinist því að fávitagangi stúlkunnar en ekki viðbrögðum viðmælandans. Hugsanlega er fyrirmyndin að Sylvíu Nótt sjónvarpsviðtöl Bridget Jones en stóri munurinn er sá að Bridget Jones er bæði fyndin og einlæg. Spurning hvort sé réttlætanlegt að reyna að gera grín að treggáfuðu fólki á þennan hátt. Þetta er nefnilega ekki einu sinni fyndið, bara ægilega pínlegt.