Hoppa í meginmál

Birta

Evukvæði

Birta

Aðalvalmynd

  • Nornin
    • Pistlar Evu
      • Örbloggið
      • Laganornin
      • Kyndillinn
      • Dindilhosan
    • Hulla
    • Einar
  • Birta
  • Liljur vallarins
    • Ó, pabbi minn
    • Sápuópera
  • Hlít

Leiðarkerfi færslna

← Fyrri Næsta →

Ljóð handa skúringakonum

Birt þann af

Heit var ég
og freyðandi
en hjaðnaði
þegar hann sökk
í ilmmjúkan kúfinn
og drakk í sig eðli mitt.

Eftir á köld.
Flöt.
Gólfið hreint
en sjálf er ég daungrátt skólp
og klúturinn undinn.

Þessi færsla var birt í Allt efni, Bláþræðir - dagbók vændiskonu og merkt sem 2 Bláþræðir fávísinnar eftir . Bókamerkja beinan tengil.
Drifið áfram af WordPress