Saving Iceland í höfuðstöðvum Landsvirkjunar

980__320x240_imgp0362FYRIRHUGUÐUM VIRKJUNUM Í ÞJÓRSÁ OG SAMSTARFI VIÐ ALCOA MÓTMÆLT

REYKJAVÍK – Í morgun fóru 30 aktívistar frá Saving Iceland hópnum inn í höfuðstöðvar Landsvirkjunnar, Háaleitisbraut 68, og trufluðu vinnu til að mótmæla fyrirhuguðum Þjórsárvirkjunum og samstarfi fyrirtækisins við Alcoa. Fyrr í morgun vatki Saving Iceland Friðrik Sophusson, forstjóra Landsvirkjunnar og afhenti honum brottfarartilkynningu (sjá r).

,,Við fordæmum áætlun Landsvirkjunnar um að reisa þrjár virkjanir í Þjórsá og eina í Tungnaá, sem m.a. á að byggja til þess að svara orkuþörf álvers Rio Tinto-Alcan í Hafnarfirði (1,2), þrátt fyrir að stækkun álversins hafi verið hafnað í íbúakosningum vorið 2007. Allt bendir nú líka til þess að virkjað verði í Skjálfandafljóti og Jökulsá á Fjöllum, þar sem Alcoa hyggst nú reisa enn stærra álver á Bakka en áður var áætlað (3,4). Þar að auki eru framkvæmdir fyrirtækisins við Þeistareyki búnar að hafa í för með sér gífurlega eyðileggingu jarðhitasvæðisins(5). Til að bæta gráu ofan á svart eru framkvæmdirnar á Norðurlandi til þess eins að framleiða orku fyrir fyrirtæki sem sjálft viðurkennir að vera vopnaframleiðandi (6) og hefur margoft hlotið athygli fjölmiðla vegna hrikalegra mannréttindabrota sinna (7). Landsvirkjun ætti ekki að bjóða Alcoa velkomið til landsins” segir Jaap Krater frá Saving Iceland.

dscn9964

Öfgafull misnotkun á réttindum verkafólks
Alcoa segist vera frábær vinnuveitandi, sem fer vel með starfsfólk sitt. En raunveruleikinn er öðruvísi:

,,Oft þarf starfsfólk að míga á sig, jafnvel kúka í föt sín eftir að hafa aftur og aftur verið meinað að nota baðherbergið. Baðherbergin eru einnig skítug, án ljósa og án klósettpappírs. Starfsfólk sem er ‘of lengi’ á klósettinu getur lent í því að vera dregið út af vörðum. Það eru meira að segja dæmi um að konur hafi þurft að girða niður um sig til þess að sanna að þær séu á blæðingum, svo þær megi nota baðherbergið oftar en tvisvar á dag” segir í skýrslu um meðhöndlun Alcoa á starfsólki í verksmiðju sinni í Hondúras (7.)

,,Með aðeins tíu mínútna fyrirvara, getur starfsfólki á næturvöktum verið skipað að vinna sex klukkutíma í viðbót, sem heldur þeim í verksmiðjunni í næstum því 14 klukkutíma. Yfirvinna er ekki borguð sérstaklega og þeir sem neita geta átt á hættu að verða reknir. […] Meðallaunin eru 74 sent á tímann, upphæð sem er um það bil þriðjungur þess sem venjuleg fjölskylda þarf til að halda sér uppi” segir í skýrslunni.

Starfsfólk hefur staðið fyrir mótmælum, en Alcoa mælir alls ekki með stofnun verkalýðsfélaga. ,,Alcoa notar morðhótanir, ólöglegar fjöldauppsagnir, svarta lista og hótanir um að loka verksmiðjunni til þess að koma í veg fyrir að starfsfólk þori að nýta sér rétt sinn til að skipuleggja” segir í skýrslunni.

Einnig hafa verið skrifaðar skýrslur um mannréttindabrot og brot á réttindum starfsfólks í Mexíkóskum verksmiðjum (8). Kaldhæðnislega, er Alcoa nú að losa sig við 1240 starfsmenn í Hondúras og Mexíkó, vegna minnkandi eftirspurnar eftir áli fyrir framleiðslu stórra bíla í kjölfar hækkandi olíuverðs (9).

Alcoa og hergagnaiðnaðurinn
Alcoa styður beint við aðgerðir bandaríska hersins, t.d. í Írak. ,,Alcoa Defense er stoltur samstarfsaðili bandaríska hersins og hergagnaiðnaðarins” sagði Dave Dobson forseti Alcoa Defense. ,,Við hlökkum til að stuðla að auknu öryggi hermanna okkar, með því að gera farartækin léttari, hraðari og sterkari” (10).

,,Allir Alcoar (all Alcoas) vinna hart að því að að þessi verkefni gangi hratt í gegn til stuðnings hermannanna okkar” sagði Mark Vrablec, framleiðslustjóri Alcoa Davenport Works (11).

Önnur nýleg dæmi um tengsl Alcoa og bandaríska hersins segja m.a frá framleiðslu orrustuskipa og annara vopnaðra farartækja (13). Fleiri dæmi um tengsl Alcoa við hergagnaframleiðendur, t.d. Lockheed Martin má finna í greinni ‘Lygar og útúrsnúningar’ eftir Snorra Pál Jónsson Úlfhildarson (14).

,,Semsagt, rafmagn frá fyrirhuguðum virkjunum Landsvirkjunnar fer beint til fyrirtækis sem tekur beinan þátt í stríðinu í Írak og Afganistan,” segir Jaap Krater frá Saving Iceland.

Um Saving Iceland
Síðasta Laugardag stöðvaði Saving Iceland vinnu á fyrirhugaðri álverslóð Norðuráls/Century Aluminum í Helguvík og á Mánudaginn sl. stöðvaði hópurinn umferð til og frá álveri Norðuráls í Hvalfirði. Aðgerðirnar eru allar partur af fjóra aðgerðasumri Saving Iceland, gegn stóriðju á Íslandi og annars staðar í heiminum.

Saving Iceland varð til þegar íslenskir umhverfissinnar kölluðu eftir alþjóðlegri aðstoð við að vernda íslensk öræfi – ein þau síðustu í Evrópu – frá stóriðju. Álfyrirtækin Alcoa, Century Aluminum og Rio Tinto-Alcan vilja öll reisa ný álver hér á landi eða stækka núverandi álver sín. Ef það verður að veruleika þarf að eyðileggja öll helstu jarðhitasvæði landsins og virkja næstum því hvert jökulfljót (sjá http://www.savingiceland.org/sos).

Í ár hafa fjórðu aðgerðabúðir Saving Iceland verið settar upp á Hellisheiði, þar sem Orkuveita Reykjavíkur er að stækka núverandi jarðhitavirkjun sína, m.a. til þess að mæta kröfum Norðuráls um aukna orku fyrir álver á Grundartanga og í Helguvík.

SONY DSCFrekari upplýsingar:
http://www.savingiceland.org
http://www.landsvirkjun.com/EN/article.a…
(2) Iceland Review (2008). Trial Delays Hydropower Projects in Iceland. http://www.icelandreview.com/icelandrevi…
(3) Visir.is (2008). Ný virkjun á stærð við Kárahnjúkavirkjun. http://visir.is/article/20080718/FRETTIR…
(4) Visir.is (2008). Enn stærra álver á Bakka hugnast Ingibjörgu ekki. http://visir.is/article/20080722/FRETTIR…
(5) Saving Iceland (2008). Energy companies destroying Þeistareykir. http://savingiceland.puscii.nl/?p=1317
(6) ALCOA Defense website. http://www.alcoa.com/defense/en/capabili…
(7) National Labor Committee with Community Comunication Honduras (2007). The Walmart-ization of Alcoa. http://www.nlcnet.org/article.php?id=447.
(8) Comité Fronterizo de Obreras (2008). Alcoa in México. http://www.cfomaquiladoras.org/english%2…
(9) Reuters (2008). Alcoa Inc.’s Alcoa Electrical And Electronic Systems To Restructure Honduran And Mexican Operations. http://www.reuters.com/finance/industrie…
(10) Alunet International (2008). Alcoa to Supply Armor Plate for New Army Vehicle http://www.alunet.net/shownews.asp?ID=23…
(11) ALCOA (2008). Alcoa Provides Aluminum for Humvees Used In Iraq. http://www.alcoa.com/defense/en/news/rel…
(12) Cavas, C. (2007). Alcoa Joins U.S. Navy LCS Program. Defense News 10/10/2007. Cfr. http://www.alcoa.com/defense/en/news/rel…
(13) ALCOA (2008). Lockheed Martin Announces Alcoa As Principal Team Member To Compete For Joint Light Tactical Vehicle Program.http://www.alcoa.com/global/en/news/whats_new/2007/jltv_program.asp.
(14) Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson, Lygar og útúrsnúningar,http://savingiceland.puscii.nl/?p=1543&language=is  

Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Þessar myndir eru frábærar. Anarkistatrúðar koma mér alltaf í gott skap:)

Birgitta Jónsdóttir, 25.7.2008 kl. 10:23

identicon

 

Óttarlegur lýður er þetta samankominn á þessum myndum. Þarf þetta fólk ekki að vinna? Er þetta vinnan þeirra? Mótmæli þessi og þetta bréf sem SI afhentu Friðriki bera ekki vott um fagleg mótmæli. Þetta er skrípaleikur einn. Hvernig í ósköpunum ætlast þetta fólk til þess að einhver taki það alvarlega þegar þetta er eins ómálefnalegt og raun ber vitni?

Er enginn með hausinn í lagi að stýra SI? Eru þetta kannski bara „serðinga-búðir“ úti á landi sem þetta fólk sækist í, sem og að hanga í krönum?

Lýður (IP-tala skráð) 25.7.2008 kl. 11:41

Smámynd: Hulla Dan

 

Guðdómlega fallegur drengur sem stendur við lið Frikka á mynd 1.

Gott framtak.

Hulla Dan, 25.7.2008 kl. 11:42

Smámynd: Eva Hauksdóttir

Lýður: Það er enginn sem stýrir SI, þetta er hreyfing en ekki her. Hvað áttu við með „serðinga-búðir“?

Eva Hauksdóttir, 25.7.2008 kl. 11:47

Athugasemdir

Smámynd: Hulla Dan

Voðalegt ógeð er þetta.
Ekki grunaði mig að svona ætti sér stað hjá þeim Alcoa gæjum og píum.

Alltaf gaman að skoða myndir af fallegum anarkistum, gott þú setur þær með til að gleðja gamlar konur 

Sakna ykkar voða mikið 

Hulla Dan, 25.7.2008 kl. 12:43

Share to Facebook