Gjöööörbreytt landslag

mbl.is 27 nýir þingmenn

Mikil bylting hefur orðið í íslenskum stjórnmálum.

Sjálfstæðisflokkurinn hlýtur umboð 23,7% kjósenda til að halda áfram eyðileggingarstarfsemi sinni á íslenskri náttúru og efnahagslífi.

Lufsa hans Framsóknarflokkurinn, sem ásamt Sjálfstæðisflokknum rak hér um langt árabil efnahagsstefnu sem gerði okkur gjaldþrota auk þess að halda öllu sem máli skipti leyndu fyrir þjóðinni, fær 14,8%, samtals 38,5% atkvæða.

Samfylkingin, sem hefur sýnt sig að segir eitt en gerir annað, og sem vermdi ráðherrastóla á meðan búsáhaldabyltingin hrópaði ‘vanhæf ríkisstjórn!’ fær samþykki 29,8% kjósenda fyrir því að kenna sig við umhverfisstefnu en reka á sama tíma stóriðjustefnu, kenna sig við félagshyggju og lýðræði en vinna á sama tíma að því að koma okkur í Evrópusambandið, sem byggir á markaðshyggju og viðheldur kapítalískum sjónarmiðum, með öllum ráðum öðrum en beinni aðkomu almennings.

Samanlagt fá stóriðjuflokkarnir 68,3% fylgi.
Samanlagt fá ESB sinnar 51,8% atkvæða.
Þetta merkir að ef Vinstri græn eiga að fá að lufsast með í ríkisstjórn er sennilega ekki annað vænna fyrir þau en að gefa eftir, bæði í Evrópumálunum og stóriðjumálum.

Ég spái því að þau gefi eftir frekar en að standa við sannfæringu sína. Ekki af því að fólkið sé slæmt, heldur af því að kerfið er rotið og þau eru samt handgengin því í blindu sinni.

Sigurvegari þessara kosninga er ekki Samfylkingin sem nú hefur öll völd í hendi sér. Ekki Borgarahreyfingin sem í fyrstu tilraun virðist ætla að koma inn 4 þingmönnum (fínn árangur miðað við markmið og ég myndi óska ykkur til hamingju elskurnar mínar ef ég liti ekki á framboðið sjálft sem skelfilegt ógæfuspor), ekki heldur Framsókn sem virðist risin úr rústinni og þótt vg hafi bætt miklu við sig frá því fyrir 2 árum hefði þetta átt að verða þeirra momentum. Sigurvegari kosninganna er kerfið sjálft, pýramídi sem byggir á valdníðslu, leynimakki og spillingu.

Íslendingar hafa kosið yfir sig það sem þeir eiga skilið.
-Evrópusambandið, með auknu fáræði, stóriðjustefnu, sem fyrir utan náttúruskaða, mengun og mannréttindabrot gegn varnalausum öreigum í öðrum heimshlutum mun endanlega gera út um möguleika komandi kynslóða á því að endurheimta efnahagslegt sjálfstæði.
-Alþjóðagjaldeyrissjóðinn sem mun þvinga fram einkavæðingu í velferðarkerfunum og öðrum ríkisrekstri og seinna gera auðlindir landsins upptækar.
-Álver sem vegna vegna verkefnaskorts munu standa auð.
-Þjónkun Alþingis við stórfyrirtæki og persónulega vináttu stjórnmálamanna við auðmenn (það dettur þó engum í hug að þar sem útrásarvíkingarnir eru farnir, verði sama stefnan ekki rekin með nýju fólki?)
-‘Trúnað’ um það hversu mikið og gangvart hverjum almenningur sé skuldsettur (eða man einhver til þess að svo mikið sem eitt leyndó hafi verið upplýst á þessum 80 dögum sem Vinstri græn höfðu til að þrýsta á Samfó?)
-Og að sjálfsögðu verðum við áfram hluti af Nató, og þar með ábyrg fyrir dauða, limlestingum og fátækt þúsunda manns sem við eigum ekkert sökótt við.

Ekki svo að skilja að útkoman hefði getað orðið neitt öðruvísi. Það er nefnilega alveg sama hvaða flokkur kemst til valda, innan kerfis sem byggir ekki á þáttöku almennings, mun hver flokkur alltaf ganga erinda stórfyrirtækja.

En það er víst það sem landinn vill.

Ég sagði mig úr stjórnmálasambandi við Ísland þegar ég sá fram á að árangurinn af búsáhaldabyltingunni yrði ekki annar en nýir rassar í ráðherrastólunum. Neytti atkvæðisréttar míns í bókstaflegri merkingu, ásamt appelsínusafa á göngum Ráðhússins. Seðillinn var seigur undir tönn og of stór til að mér tækist að klára hann en hann var þó ekki jafn tormeltur og þetta viðbjóðslega fulltrúalýðræði sem svo fáir virðast sjá í gegnum. Ég fer út á miðvikudaginn. Aldrei hef ég orðið neinum aðskilnaði fegnari.

Share to Facebook

One thought on “Gjöööörbreytt landslag

  1. ——————————————————————–
    Ég hef einmitt lengi haldið því fram að allt sé betra í útlöndum. Ég sannreyni það þegar ég fer þangað.

    Posted by: Þórunn Gréta | 28.04.2009 | 10:24:19

    ——————————————————————–

    Ég er ekki að fara út af því að sé svo slæmt að vera hér, heldur vegna þess að ég vil ekki taka þátt í því að selja frá okkur sjálfstæðið og sé ekki fram á að þessar 200 hræður sem ætla að berjast gegn því nái neinum árangri. Ég vil ekki vera í stjórnmálasambandi við almenning sem heldur að Sjálfstæðisflokkurinn (sem vissulega er vandamál) sé rót vandans og það sé hægt að koma á réttlátu samfélagi með því að skipta um stjórn.

    Posted by: Eva | 28.04.2009 | 10:52:34

    ——————————————————————–

    Tjásur af moggablogginu

    Ég sagði mig úr lögum við Ísland fyrir nokkrum árum, hehe, var því á undan. En þetta er alveg satt, það er mjög skuggalegt og súrt að þessi viðbjóðslegi flokkur hafi fengið þetta mörg atkvæði. Allt einhverjir uppvakningar og zombíar sem eru á bakvið það  Kannski segjum við okkur samt úr Nato núna og betrumbætum jafnvel kvótakerfið, hver veit. Það eru allt önnur gildi hjá vinstrafólki heldur en hægri, það er bara þannig.

    pirrhringur, 26.4.2009 kl. 20:46

    ——————————————————————–

    … má til með að kveðja þig með kurt og pí og óska þér velfarnaðar. Verð þó að leyfa mér að benda á nokkrar misfærslur hjá þér.

    „Íslendingar hafa kosið yfir sig það sem þeir eiga skilið. – Evrópusambandið, …“

    1. Íslendingar eiga ekki skilið að lenda í klóm Evrópusambandsins.

    2. Þessar sýndarkosningar segi afskaplega lítið um raunverulegan vilja landsmanna.

    3. Hins svokallaða „búsáhaldabylting“ er bara byrjunin á ferlinu. Fleiri byltingar eiga eftir að koma í kjölfarið.

    „Ég sagði mig úr stjórnmálasambandi við Ísland þegar ég sá fram á að árangurinn af búsáhaldabyltingunni yrði ekki annar en nýjir rassar í ráðherrastólunum.“

    1. Árangurinn af „búsáhaldabyltingunni“ var sá að við náðum öllum kröfum okkar fram, 100%. Vanhæf ríkisstjórn vék frá völdum, kosningar voru boðaðar og stjórnir fjármálaeftirlits og Seðlabanka viku. Þessar sýndarkosningar eru fjörbrot gamla kerfisins. Íslendingar eru búnir að sjá að það þarf ekki kosningar til að breyta hlutunum.

    2. Endurtek góðar kveðjur og árnaðaróskir til þín og þinna. Hugsa til þin í júníbyltingunni 

    Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 26.4.2009 kl. 22:52

    ——————————————————————–

    Takk fyrir samstöðuna á Austurvelli og gangi þer allt í haginn. Árni Hó

    Árni H Kristjánsson (IP-tala skráð) 26.4.2009 kl. 23:50

    ——————————————————————–

     Ég gef þér fimm ár.. og þú ert komin aftur. Það er ekkert skárra að búa annarsstaðar en hér.

    Brynjar Jóhannsson, 27.4.2009 kl. 02:19

    ——————————————————————–

    Sæl.

    Þú ert komin á þing, með alla vega eina tá og þannig er líka hægt að breyta.  Ekki fara langt og ekki vera lengi.  Haltu sambandi, það þurfa allir á þer að halda.  Takk fyrir allt, TAKK.

    Kær kveðja,

    Þór

    Þór Saari, 27.4.2009 kl. 08:52

    ——————————————————————–

    Eva mín gangi þér vel á nýrri grund. Gastu samt ekki fundið eitthvað skárra en Noreg ?

    Það verður missir af þér og þínum skörpu athugasemdum á blogginu og þátttöku þinni í baráttunni fyrir betra Ísalndi. Lifðu heil.

    KV Hilmar.

    hilmar jónsson, 27.4.2009 kl. 23:00

    ——————————————————————–

    Sæl dramadrottning.

    Mér hefur lærst að viðhorf til manna og málefna er valkostur, sem hver og einn getur stjórnað með því að skoða huga sinn.  Þetta hef ég reynt sjálfur. Undanfarið hefur þú valið að vera reið og bitur út í nánast allt og alla og því líður þér trúlega ekki sem best.

    Þetta er slæmt því þú er svo sannarlega snjöll og skemmtileg stelpa.  Hafðu í huga að í Noregi mætir þér sama „sápan“ og hér og þú þarft að velja þér viðhorf þar, rétt eins og hér.  Vertu jákvæð og þér mun líða betur og vegna betur.

    Góða ferð!
    kjh

    kjarheid (IP-tala skráð) 27.4.2009 kl. 23:17

    ——————————————————————–

    Takk fyrir góðar óskir. Danmörk varð að vísu ofan á eftir allt saman. Ég er reyndar ekkert reið og bitur út í allt og alla þótt mér sé illt í pólitíkinni en ég játa töluverðan pirring yfir því að fólk skuli halda að ég fari frá Íslandi af því að ég haldi að sé betra að vera annarsstaðar. Ég er ekki að fara út af því að sé svo slæmt að vera hér, heldur vegna þess að ég vil ekki taka þátt í því að selja frá okkur sjálfstæðið og sé ekki fram á að þessar 200 hræður sem ætla að berjast gegn því nái neinum árangri.  Ég vil ekki vera í stjórnmálasambandi við almenning sem heldur að Sjálfstæðisflokkurinn (sem vissulega er vandamál) sé rót vandans og það sé hægt að koma á réttlátu samfélagi með því að skipta um stjórn.

    Eva Hauksdóttir, 28.4.2009 kl. 01:42

    ——————————————————————–

    Gangi þér vel og takk fyrir stuðninginn í vetur!

    Héðinn Björnsson, 28.4.2009 kl. 11:24

    ——————————————————————–

    Þú ert skrýtin skrúfa. Velur að fara til Danmerkur, sem er nú þegar í ESB. Talandi um að vera í mótsögn við sjálfa sig. En í guðanna bænum drífðu þig og good riddance.

    Anna (IP-tala skráð) 28.4.2009 kl. 15:51

Lokað er á athugasemdir.