Mikið ósköp á hann Magnús Þór bágt

Oh, mig svíður svo í sálina þegar ég heyri svonalagað.

Hvað sem öllu kreppugrenji líður eru flestir Íslendingar ósiðlega ríkir. Og jájá, það er til fullt af fólki á Íslandi sem á bágt en ástæðan fyrir því er misskipting, og kannski að einhverju leyti eymdarhvetjandi kerfi en ekki það að við höfum ekki bolmagn til þess að halda utan um þá sem raunverulega þurfa á því að halda.

Ég gæti skilið það sjónarmið að sveitarfélag ætti ekki að taka við stórum hópum af svokölluðum félagslegum öryrkjum sem hafa valið sér það hlutskipti, þrátt fyrir gnægð úrræða. Slíkt fólk er til á Íslandi, nóg af því. En þetta er fjandinn hafi það flóttafólk. Fórnarlömb aðstæðana en ekki síns eigin hugarfars. Fjölskyldur sem fá enga raunverulega hjálp í sínu heimalandi, alveg sama hversu mikið við styðjum Rauða Krossinn. Eina leiðin sem þetta fólk getur mögulega farið til þess að breyta aðstæðum sínum er að koma sér burt og biðja um aðstoð. Og það er einmitt það sem flóttamenn gera, svo mér finnst afar líklegt að hér sé einmitt um að ræða fólk sem hefur tileinkað sér dugnað og sjálfsbjarngarviðleitni.

Svo þætti mér fróðlegt að vita á hvaða rökum Magnús Þór byggir þá skoðun að þetta fólk þurfi að vera ‘í gjörgæslu félagsmálayfirvalda um ókomna framtíð’. Ég er ekki með neinar tölur á hreinu en eru t.d. Kósóvó Albanarnir sem komu hingað fyrir nokkrum árum í gjörgæslu félagsmálayfirvalda? Mig rámar nefnilega í frétt þar sem kom fram að flestir þeirra hafi verið komnir í vinnu innan 8 mánaða frá því að þeir komu hingað og hafi almennt samlagast samfélaginu nokkuð vel. Eða er ég að rugla einhverju saman? Auðvitað þarf að styðja við fólk sem hefur misst heimili sín og jafnvel fjölskyldur, búið við stríðsógn, kúgun og slæma heilsugæslu. En ég held nú samt að fólk sem ætlar að setjast hér að, eða neyðist til þess, sé mun líklegra til að aðlagast menningunni heldur en farandverkamenn sem geta komið hingað unnvörpum án þess að okkur þóknist náðarsamlegast að líta á þá sem manneskjur.

Þegar ég heyri sjónarmið eins og það sem kemur fram hjá téðum Magnúsi, fer ekki hjá því að ég hugsi til Strindbergs; mikið ósköp eiga mennirnir bágt.

Share to Facebook

One thought on “Mikið ósköp á hann Magnús Þór bágt

  1. ———————-
    Kannski er Magnús Þór að hrópa á hjálp fyrir sjálfan sig með þessari hegðun sinni. Hann þjáist og þarf hjálp (þyrfti kannski að fara á geðræna gjörgæslu um ókomna framtíð).

    Posted by: Halli | 28.05.2008 | 13:01:47

    ———————-

    Eini flóttamaðurinn sem ég þekki er núna að klára mastersnám í lögfræði á Bifröst og talar nær fullkomna íslensku. Ekki erfiður kúnni hjá félagsmálayfirvöldum…

    Posted by: hildigunnur | 4.06.2008 | 12:06:31

     

Lokað er á athugasemdir.