Mér finnst dapurlegt þegar fólk er svo háð gemsanum sínum að það getur alls ekki slökkt á honum. Og ekki bara dapurlegt, það er líka tillitsleysi. Mörg fyrirtæki sjá ástæðu til að biðja viðskiptavini að stilla sig um að tala í símann við afgreiðsluborðið. Oft notar fólk símann þótt það sé í bíó, bæði til að tala og spila leiki. Ég hef m.a.s. oftar en einu sinni orðið vitni að því að sími hringi við jarðarför.
Sammála argasti dónaskapur, hef þurft að biðja gesti ( táninga) um að slökkva á gemsa áður en sest er að borði.