Má ekki heita Jón (Dindilhosan)

Einkamálaeftirlitið hefur úrskurðað að fyrrverandi borgarstjóri og skemmtikraftur sá er gengur undir nafninu Jón Gnarr, verði vessgú að taka upp nafn sem sönnum Íslendingi sæmi.

Í úrskurði eftirlitsins segir að samkvæmt íslenskum beygingarreglum sé Jón annaðhvort kvenmannsnafn, þ.e.a.s. hún jónin, og beygist eins og sjónin, ellegar hvorgugkynsnafn eins og grjón og tjón.

Mikil hætta sé því á að það verði Jóni til ama og tjóns að heita Jón, rétt eins og hver önnur kelling eða það sem verra er; transi eða annars konar óskilgreindur öfuguggi. Auk þess sé hætta á að hann verði uppnefndur Jón – tjón eða Jón – flón, með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

Jóni hefur því verið gert að laga nafn sitt að íslensku beygingarkerfi og mun hann héðan í frá heita því ágæta karlmannsnafni Jónn, sem beygist eins og þjónn og er yfirvaldinu þóknanlegt.

Rithöfundurinn Sjón mun einnig hafa móttekið erindi einkamálaeftirlitsins og mun framvegis bera karlmannsnafnið Sjónn.

Ljósmynd Eddi Jóns