Hvenær hefur gengi krónunnar verið stöðugt og hvað eru þessir menn að gera núna sem er svo frábrugðið þeirra fyrri stjórnháttum, að það gefi tilefni til að ætla að þeir nái skyndilega árangri?
![]() |
Mikilvægast að gengið styrkist |
Hvenær hefur gengi krónunnar verið stöðugt og hvað eru þessir menn að gera núna sem er svo frábrugðið þeirra fyrri stjórnháttum, að það gefi tilefni til að ætla að þeir nái skyndilega árangri?
![]() |
Mikilvægast að gengið styrkist |
Mér finnst út af fyrir sig virðingarvert að menn viðurkenni nauðsyn þess að skapa grundvöll fyrir trausti og friði um bankana. Finnst það samt ekki svo æðislegt að sé ástæða til að ganga á eftir þeim.
![]() |
Standa við afsagnir sínar |
https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/50226980938
Þegar fólk missir vinnuna er það persónulegt vandamál.
Þegar fólk getur ekki borgað af lánunum sínum er það persónulegt vandamál.
þegar fólk þarf að útskýra fyrir börnunum sínum að þau geti ekki haldið áfram í fimleikunum, fengið skólamáltíðir og nýja úlpu, þá er það fokking persónulegt vandamál.
Klúður stjórnmálamanna og embættismanna hefur mjög alvarlegar afleiðingar fyrir persónur, sem fá engan afslátt af sínum vandamálum út á það viðhorf að ekki megi persónugera vandann. Fólkið sem klúðraði efnahagskerfinu hefur nöfn, kennitölur og heimilisföng, alveg eins og við hin. Hversvegna í fjáranum ættu persónulegheit vandans ekki að ná til þeirra eins og annarra?