Afhverju virðast óféti, óhræsi, ótuktir, óbermi og ódámar, svona miklu algengari en féti, hræsi, tuktir, bermi og dámar?
Og hvað með það?
Setjum sem svo að það sé alveg rétt að þeir sem skrifa nafnlaust á netinu þori ekki að standa við skoðanir sínar. Hvað þá með það? Verður staðreynd eitthvað ósannari eða sannfæring byggð á veikari grunni, ef það er hugleysingi sem heldur henni fram?
Setjum sem svo að það sé alveg rétt að þeir sem skrifa um hitamál eða halda fram róttækum skoðunum undir nafni séu fyrst og fremst athyglisjúkir. Og hvað með það? Er athyglissjúkir eitthvað óskynsamari eða ómarktækari en aðrir?
Hústaka
Vil endilega vekja athygli á þessu.
Mér finnst þetta rosalega flott framtak.
Þurfum að leiðrétta bullið í Sameinuðu þjóðunum
![]() |
„Engin ástæða til að senda ekki fullorðna til Grikklands“ |
Sameinuðu Þjóðirnar gefa út tilmæli um að senda hælileitendur ekki til Grikklands. Evrópusambandið leggst líka gegn því sem og ýmis mannréttindasamtök. Þetta er þó greinilega hið mesta bull, enda komast þeir sem hafa hagsmuni af því að losa sig við flóttamenn að þeirri niðurstöðu að ekkert mæli gegn því að senda þá til Grikklands.
Af hverju eru SÞ að ljúga svona? Hvað gengur þessu fólki til?
Já ráðherra
![]() |
Mótmæltu meðferð á hælisleitendum |
Þetta er sögulegur dagur í mannréttindamálum á Íslandi. Dómsmálaráðherra kom út í glugga. Hún talaði við fólkið. Hún hlustaði. Hún bauð okkur til fundar, ekki eftir 2 mánuði, heldur í fyrramálið. Engin lögga, engin átök, ekkert vesen. Það nefnilega virkar ágætlega á mótmælendur að sýna bara smá virðingu.
Nú vona ég bara af öllu hjarta að þetta sé merki um viðhorfsbreytingu hjá stjórnvöldum og að tími Björns Bjarnasonar sé raunverulega liðinn.
