Þeir hjá mogganum vita greinilega ekki muninn á graffara og ad-buster.
Ekki benda á mig
Það er eitthvað svo subbulegt við að einn maður fái 900 milljónir fyrir að hætta að vinna.
Svo subbulegt að við getum sameinast um að hneykslast á því að þetta forríka kapítalistasvín skuli sofa á næturnar.
Allavega á meðan við hugsum sem minnst út í það að meðalmennið á Íslandi er tekjuhærra en 80% jarðarbúa og á samt ekki við neina svefnerfiðleika að stríða vegna auðæva sinna. Sumir hinsvegar sofa illa af fjárhagsáhyggjum þrátt fyrir þau.
Lögmál: Sá er er ósiðlega ríkur hlýtur alltaf að vera ríkari en ég.
Lögmál
Ég hugsaði sem svo að stúlkan hlyti að hafa flúið afskaplega hörmulegt ástand eða vera í einhverri þeirri aðstöðu sem réttlætti að hún fengi forgang. Ef þetta er allur sannleikurinn, þurfa þá ekki allir meðlimir Allsherjarnefndar að segja af sér með skömm?
Ég get alveg trúað hvaða þingmanni sem er, að Jóhönnu Sigurðardóttur einni undanskilinni, til að reyna að beita áhrifum sínum í slíku máli, það er bara mannlegt. Öllu verra er ef nefndir á vegum hins opinbera, sem eiga að gæta hlutleysis, láta undan þrýstingi eða hygla einhverjum fyrir klíkuskap. Ég vona að það sé ekki raunin en hugsanlega sannast hér enn og aftur það sem mér gengur iðulega svo illa að trúa; að hlutirnir eru venjulega nákvæmlega eins og þeir líta út fyrir að vera.
Ég efast
Klæðskiptingar á steinöld??? Gaman þætti mér að sjá hvernig dragdrottningar steinaldar klæddu sig.
Ég verð að játa að ég skil nú ekki alveg hvernig Venus frá Willendorf færir sönnur á stóðlífi steinaldarmanna. Getur ekki alveg eins verið að hún hafi verið hugsuð sem forvörn gegn offitu?
Tjásur:
Þú skalt ekki trúa þínum eigin augum
Fjölmiðlar beðnir að halda sig á mottunni og almenningur um að trúa þeim ekki.
Æjæ hvað það er nú sárt að almenningur skyldi trúa myndbandsupptökum af framgöngu lögreglunnar fyrir austan síðasta sumar. Uppáhaldsmyndskeiðið mitt er þegar yfirmaður í lögreglunni ræðst á ljósmyndara sjónvarpsins fyrir utan lögreglustöðina á Eglisstöðum. Fjárans ósvífnin hjá RÚV að vera að sýna það í sjónvarpi.
Ætli almenningur trúi ekki bara því sem honum finnst trúlegast.