https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/10151876452077963
Greinasafn fyrir flokkinn: Þjóðarsálin
Pot
Núna stingur fb upp á því að ég poti í launbróður minn. Er Sykurbergur bara svona ósmekklegur eða veit hann kannski ekki alveg allt um ástalíf foreldra minna?
Pot er víst hugsað sem aðferð til að vekja athygli á sér. Milli ókunnugra með lokaðan vegg getur það t.d. verið samkomulag um að fá að sjá prófíl í takmarkaðan tíma áður en maður ákveður að senda vinarboð, þú hleypir fólki þannig inn á vegginn með því að pota til baka. En Facebook virðist helst stinga upp á því að maður póki þá sem maður hefur átt samskipti við eða skoðað prófíl hjá nokkrum dögum áður og mér þætti mjög undarlegt að vekja athygli nánustu vina og ættingja á þann hátt.
https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/10151874427122963
Þeir sem hata sjúklinga
Við skulum hafa það á hreinu að þeir sem eru fylgjandi þróunaraðstoð hata sjúklinga enda er útilokað að taka peninga til þróunaraðstoðar frá neinum öðrum en heilbrigðiskerfinu. Það er t.d. ekki hægt að sækja þá til útgerðarinnar.
Spurning dagsins
Hefur verið athugað hversu hátt hlutfall fullorðinna Íslendinga getur hugsað sér til gagns? Ættum við ekki að tékka á því áður en við förum á límingunum yfir ólæsi barna?
Þetta er nú dálítið vangefið
Það er enginn að gera lítið úr fötluðum með því að benda á hið augljósa, að fötlun skerðir möguleika fólks á að vera sjálfbjarga.
Ég ber mikla virðingu fyrir þinni baráttu fyrir réttindum fatlaðra og finnst þú stórkostlegur karakter. En ég er fegin að vera ekki í þinni aðstöðu og ég mér finnst jákvætt þegar tekst að ráða við sjúkdóma sem með tímanum valda fötlun. Mér þætti líka jákvætt að vilja koma í veg fyrir að ríkisútvarpið lamist. Lamist í þeirri merkingu að geta ekki sinnt hlutverki sínu, alveg eins og lamaður líkami getur ekki sinnt þörfum manneskjunnar sem hann hýsir.