https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/10151982061787963
Greinasafn fyrir flokkinn: Lýðræði
Misskilningur um anarkisma
Það er algengt að fólk haldi að anarkismi merki engar reglur, að yfirvaldsleysi merki stjórnleysi og að afnám ríkisvalds merki afnám samfélags. Ég þekki engan heilvita mann sem heldur að það sé æskilegt eða einu sinni gerlegt að hafa engar reglur. Þetta er hinsvegar spurning um hvernig á að setja reglur og hvernig á að framfylgja þeim. Halda áfram að lesa
Þetta eina sem þingheimur náði samstöðu um
Í dag eru margir reiðir.
Út af þessu með auðlindaákvæðið og kvótann og vatnalögin og allskonar og æjá svo var eitthvað um stjórnarskrá. Dálítið verið daðrað við einkavæðingu bankanna líka. Var ég búin að nefna meiri stóriðju? Ríkisstyrkta?
Það er ósköp skiljanlegt að þeir sem kusu Samfylkinguna og VG séu í sárum en í allri þessari reiði yfirsést mönnum nokkuð stórkostlegt og undursamlegt; það að þrátt fyrir allt lauk störfum þingins í samhug og einingu sem á sér varla fordæmi í Íslandssögunni. Að þingmönnum Hreyfingarinnar undanskildum, sameinuðust þingmenn allra flokka loks í verkum sínum, og eins og til að undirstrika það viðhorf að ríkisstjórn eigi að hlusta á mótherja sína á Alþingi, sáu stjórnarflokkarnir sjálfir um að eyða stjórnarskrármálinu á meðan þingmenn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokksins sátu hjá.
Aldrei frá því að ég fór að fylgjast með fréttum hef ég séð skapast á Alþingi jafn skýra, þverpólitíska afstöðu um eitt mál: Það að Sjálfstæðisflokkurinn eigi að ráða.tj
Fyrir hvern er fólk á þingi?
https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/10151331971662963
Hvernig forseta?
https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/10150599298657963