Ef þeir hafa val um leyfa kjósendum að raða á lista en nýta sér ekki það val (hversvegna ættu þeir að gera það?) þá er þetta nákvæmlega engin breyting. Jafnvel þótt ég fái að hafa áhrif á það hvaða sæti tiltekinn maður skipar á lista, er breytingin líka sáralítil.
Lausnin er einföld. Við höldum stjórnlagaþing, sem samþykkir nýja stjórnarskrá. Verði almenn stemning fyrir því að afnema flokkakerfið eða gera á því gagngerar breytingar, þá setjum við það í stjórnarskrána. Fyrsta ákvæði nýrrar stjórnarskrár verður á þá leið að múgurinn megi beita hverjum þeim ráðum sem tiltæk eru til að framfylgja ákvæðum stjórnarskrárinnar. Svo gerum við það, hvort sem valdhöfum hugnast það eða ekki.
![]() |
Persónukjör í kosningunum? |
