Afhverju virðast óféti, óhræsi, ótuktir, óbermi og ódámar, svona miklu algengari en féti, hræsi, tuktir, bermi og dámar?
Greinasafn fyrir flokkinn: Íslenska
Koffein og sprúttblöndu með í ræktina?
Hafa matvælastofnanir varað fólk við að leggja stund á líkamsrækt? Eða hafa þær varað við samneyslu koffeins og áfengis á meðan fólk stundar líkamsrækt? Mikið óskaplega er þetta klaufalega að orði komist.
![]() |
Hámarksgildi koffíns í drykkjarvörum fellt niður |
Kúrbítur
… eitthvað til að bíta í þegar maður er á kúr?
Viðeigandi
Merkir ekki sögnin að náða það sama og að fella niður refsingu eða milda hana? Dálítið seint í rassinn gripið verð ég að segja. Væri ekki nær að gefa þessu fólki uppreisn æru? Kirkjan gæti svo játað sekt sína fyrir þessar hroðalegu mannfórnir og gert yfirbót með því að gefa allar eigur sínar til samtaka sem berjast gegn valdi trúfélaga.
Nýyrðasmiðir allra landshluta sameinist
Það vantar íslensk orð yfir ‘bionics’ í staðinn fyrir þessa 5 lína skýringu í orðabókinni, sem er aukinheldur svo flókin að mér dettur ekki í hug að læra hana nema eiga kost á prófskírteini út á það.
Plíííís, þið sem takið að ykkur að finna nýtt orð, látið það ríma á móti rassgat. Eða elska. Þátturinn gæti þá kallast krassgataða konan (það stuðlar m.a.s.) eða belskaða konan. Sko ég er m.a.s. komin með orðin svo nú þurfið þið nýyrðasmiðir bara að finna góð rök fyrir þeim.
