https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/301874433751
Greinasafn fyrir flokkinn: Andóf og yfirvald
Löggan kallar eftir verkfærabyltingu
Eymingja löggan. Eins og var gaman um þetta leyti í fyrra, þá er bara allur vindur úr pöpulnum og ekkert að gera hjá áhugasömum löggum nema að uppræta kannabisverksmiðjur. Sumir hafa ekki fengið að lemja neinn lengi og það er allt orðið fullt af gasbrúsum sem bíða þess að verða tæmdir.
Lögguhvuttarnir eru orðnir svo þunglyndir af aðgerðaleysi að til vandræða horfir, svo nú hafa yfirvöld gripið til þess ráðs að skora á mótmælendur í aðra umferð; verkfærabyltinguna.
Nú sitja Íslendingar uppi með ónýtt efnahagskerfi, ónýtt stjórnkerfi og ráðherra sem þvert á fyrri loforð stunda sama leynimakk og forverar þeirra. Og nú þurfa þeir sem ekki eru til í að láta það yfir sig ganga að draga fram vírklippur og járnsagir og gera sig klára í næstu uppreisn. Löggan nennir greinilega ekki neinu búsáhaldabulli lengur, þeir vilja verkfæri og vitanlega gerum við eins og löggan biður.
Sláandi undirskriftasöfnun
https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/275507473074
Þjóðhátíð -af ærnu tilefni
Til hamingju með búsáhaldabyltinguna. Höldum þjóðhátíð í kvöld. Við þurfum ekkert að láta kulda stoppa okkur. Ef viðrar ekki fyrir götupartý á Austurvelli þá bara fyllum við veitingastaðina. Ef hefur einhverntíma verið ástæða til að splæsa í latte þá er það núna. Tökum gítarinn með inn á staðina og syngjum.
Þetta með víkingana hans GeirsJónssonar
https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/256823282120