Og svo heldur Ögmundur að það sé engin hætta á að forvirkar rannsóknarheimildir verði notaðar til að njósna um grasrótarhreyfingar. Það þarf ekki einu sinni heimildir til.
Greinasafn eftir:
Af huglægri getu minni og Páls Magnússonar
Þar sem ég bý yfir huglægri getu til að auka færni mína í því að lesa úr töflum, er ég að hugsa um að sækja um valdastöðu í bankakerfinu. Aukinheldur dugar huglæg geta mín nú þegar til að ráða krossgátur, svona ef skyldi vera dauður tími á milli þess sem ég sel vinum mínum banka og les gögn úr töflum og myndum. Það fyrir utan er ég alveg rosalega góð í því að vera persóna og mun því vafalaust skora mjög hátt á persónuleikaprófi. Og svo kann ég líka alveg að skrifa bréf.
Á ekkert að spyrja Þvaglegg sýslumann?
Af hverju er enn enginn íslenskur blaðamaður búinn að gefa almenningi upplýsingar um það hverju hinn landsþekkti lögregluafglapi Þvagleggur sýslumaður svaraði þegar þeir spurðu hversvegna ekki hefði verið lýst eftir árásamönnunum fyrr en tæpum mánuði eftir atvikið? Gleymdu þeir nokkuð að spyrja?
Hvernig gengur annars rannsókn þessa máls? Ætlar einhver blaðamaður að spyrjast fyrir um það.
Hvað gerir Ögmundur?
Þá er undirskriftasöfnuninni vegna Guðmundar- og Geirfinnsmálsins lokið.
1190 undirskriftir söfnuðust og hafa nú verið sendar til Ögmundar. Ég bjóst við meiri þátttöku. Hélt einhvernveginn að flestum þætti skipta máli að búa við réttarkerfi sem viðurkennir mistök sín. Réttarkerfi sem viðurkennir ekki pyndingar sem rannsóknaraðferð og dæmir ekki menn án sönnunargagna.
En líklega er flestum sama. Kannski ekkert undarlegt. Þegar fólk býr hvorki við hvatningu né tækifæri til að hafa áhrif á umhverfi sitt og samfélag þá er ekki von að það taki ábyrgð heldur.
Ég hugsa að Ögmundur skipi rannsóknarnefnd. Hann getur ekki verið þekktur fyrir að gera ekkert og rannsóknarnefnd er voða dipló.
Síðasta tækifæri
Á næstu dögum mun Ögmundur Jónasson taka afstöðu til kröfu um endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmála.
Ögmundur getur ekki fyrirskipað endurupptöku en hann getur beitt sér fyrir henni með því að mælast til þess við hæstarétt og verði hæstréttur ekki við því getur Ögmundur skipað rannsóknarnefnd. Álit slíkrar nefndar hefur ekkert lagalegt gildi og máir sennilega ekki skítaglottið af smetti Valtýs Sigurðssonar en eitthvað gæti þó komið í ljós sem gefur enn eitt tilefnið til endurupptöku.
Snemma í fyrramálið verður þessi áskorun send Ögmundi. Þátttaka hefur verið dræm. Margir hafa skorast undan því að setja nafn sitt við þetta með þeim orðum að þeir viti ekki nóg um málið til að taka afstöðu. Sú afstaða er byggð á misskilningi. Með því að undirrita þessa áskorun er ekki verið að taka afstöðu til þess hvort dómfelldu voru sekir eða saklausir, heldur þá afstöðu að rannsókn málsins hafi verið gölluð og því sé ástæða til að kanna hvernig að henni hafi verið staðið og hvort hún hafi gefið tilefni til sakfellingar.
Ég hvet þá sem enn hafa ekki undirritað áskorunina til að gera það nú þegar.
Hér eru tenglar á umfjöllun Ísland í dag um málið.
Fyrri þáttur
Seinni þáttur.