Lekamálið Sigríður Björk

Jæja. Hún vissi semsagt að minnisblaðið hafði verið sent á fjölmiðla. Fannst henni ekkert áhugavert að hann væri að biðja um greinargerð um Tony Omos sama dag og fjölmiðlar greina frá upplýsingum sem eiga að hafa komið fram í rannsókn lögreglunnar á Suðurnesjum? Spurði hún virkilega ekki hvaðan blöðin hefðu þær upplýsingar?

Hún sendir Gísla greinargerð, hefur svo fljótlega komist að því, ef hún hefur á annað borð verið stödd á Íslandi og/eða haft aðgang að fjölmiðlum, að rógburði um hælisleitendur hafði verið bætt aftan við skjalið. Datt henni aldrei í hug allan þennan tíma að það væri eitthvert samband á milli fréttanna af minnisblaðinu og þess að Gísli Freyr hefði verið að reyna að ná í hana út af Tony Omos sama morgun?

Vigdís og taflið

Þú misskilur þetta Vigdís. Ég er ekki að reyna að þagga niður í þér. Það er ekki hægt. Ég er að reyna að opna augu kjósenda fyrir því hverskonar glapræði það er að styðja þig til þingsetu eða annarra starfa sem fela í sér völd.

https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/10151997277842963