… fyrir því að Umhverfisráðherra skuli hafa fengið rangar upplýsingar, sem leiddu til þess að dýr í útrýmingarhættu var deytt að óþörfu?
Greinasafn eftir:
Undarleg frétt
Ég skil ekki þessa frétt og þá á ég ekki við þessa augljósu villu ‘bannað honum að hætta’. Það sem ég skil ekki er hvernig hann sparar á því að taka málin í sínar hendur í stað þess að láta lögguna um það. Varla hafa þjófar sem hafa verið staðnir að verki hingað til fengið að halda ránsfengnum?
Kúrbítur
… eitthvað til að bíta í þegar maður er á kúr?
Daglegt líf í Palestínu
Má til að benda á þetta myndband sem ég sá hjá Sigga Hólm. Kannski snertir þetta myndband mig dýpra en ella af því að Haukur var í Tel Rumeida.Það eru einmitt svona hlutir sem rata ekki í fréttir og þessvegna erum við svo firrt. Við fáum fréttir af tölu látinna og særðra en lítið annað. Ég get ekki einu sinni ímyndað mér hvernig það er að búa við þennan veruleika.
Leg
Það vantar hvorki í mig kvenlegurnar né kynlegurnar. Duglegurnar eru hinsvegar eitthvað að ryðga.