Glúmur Baldvinsson

Glúmur Baldvinssson alþjóðastjórnmálafræðingur skrifar í moggann í dag. Hann setur fram óskalista yfir þá sem mótmælendur ættu að einbeita sér að.

Glúmur, greyið mitt hættu að tuða yfir því sem ekki er gert og skipuleggðu þínar mótmælaaðgerðir sjálfur. Ég er þér sammála um að þær eru allar þarfar og ég skal sannarlega mæta.

Allt annað á Íslandi

Við getum semsagt komist í gegnum kreppuna af því að Svíar gátu það en ekkert þeirra ráða sem Svíar gripu til mun samt virka fyrir Íslendinga? Nema hugsanlega það að stofna sjálfstæði okkar í voða með inngöngu í ESB?

Þetta hlýtur að hafa verið gagnlegur fyrirlestur

mbl.is Íslendingar mega ekki bíða

Smá leiðrétting

 ‘Krakkarnir’ sem tóku þátt í þessari aðgerð eru á aldrinum 18-47 ára. Flestir í kringum 25 ára.Einhversstaðar sá ég að mótmælendur hefðu ekki komist inn í ráðherrabústaðinn en sannleikurinn er sá að enginn gerði tilraun til að fara inn, enda var tilgangurinn sá að hindra inngöngu ráðherra og óþarfi að fara inn til þess. Halda áfram að lesa

Að gefnu tilefni

mbl.is Lögregla ræddi við mótmælendur

Að gefnu tilefni skal tekið fram að sögur af meintri handtöku sonar míns eru stórlega ýktar. Hann var reyndar ekki einu sinni með í þessari aðgerð í þinghúsinu. Hann er hinsvegar staddur uppi á lögreglustöð núna í þeim tilgangi að fá almennilegan rökstuðning fyrir handtöku mótmælenda í dag.

 

Lítið notuð fallöxi óskast

mbl.is Eignast líbýskur banki Kaupþing í Lúxemborg?

Mér segir svo hugur um að á næstu mánuðum verði framin mikil „hagræðing“ í heilbrigðis- og menntakerfinu.

Sjálf vildi ég frekar sjá hagræðingu á Alþingi og í bönkunum. Tilteknum bankastjóra sem nú makkar með Gaddafi, mætti gjarnan hagræða út úr íslensku valdastéttinni hið snarasta.

Fallöxin á samt bara að vera til skrauts en mér þætti viðeigandi að hún prýddi hinn nýja fána lýðveldisins. Sá gamli er líka með úreltu aftökutæki sem aldrei hefur verið notað á Íslandi svo fánarnir myndu kallast skemmtilega á og fallöxin er þó altént ekki trúartákn