Lögreglan í Vestmannaeyjum náði tveimur jónum um helgina og 5 grömmum af maríjúana líka. Heppnir eru Vestmannaeyingar. Annars hefðu jónurnar sennilega verið reyktar og Gvuð má vita hvernig það hefði endað. Sennilega í heróínsprautum en nú hefur þessum ungu konum verið forðað frá slíkum örlögum, þökk sé skynsamlegri fíkniefnalöggjöf.
Hvernig stendur annars á því að lögreglan gerir ekkert til þess að uppræta gvuðlast í íslensku samfélagi? Eða klámið maður, klámið!
Lögreglan þarf að gera klám- og gvuðlastsrassíu bæði í netheimum og í heimahúsum. Annars endar þjóðmenningin í einni allsherjarorgíu. Það gæti jafnvel endað með því að Helvíti yfirfyllist af fordæmdum sálum.
Ég velti því líka fyrir mér þegar ég les þetta, hvort það sé virkilega ástæða til húsleytar fyrir tvær jónur
Áhöld og tól til fíkniefnaneyslu var gert upptækt líka. Hér á höfuðborgarsvæðinu fæst jónupappír í flestöllum sjoppum. Lögreglan í Vestmannaeyjum gæti gert skurk í Reykvískum sjoppum