Kyn & klám

Nei, það er enginn að úthýsa mér

.

Ég er á ferðalagi með stopulan aðgang að lélegri nettengingu og sá ekki fyrstu útgáfuna af þessari frétt. Sá fréttina reyndar ekkert fyrr en í dag en svo virðist sem pistill minn um ritskoðunarkröfur hafi valdið misskilningi. Það þykir mér leitt og ég vildi að ég hefði vandað mig betur. Ritstjórn Kvennablaðsins hefur ekki á nokkurn hátt gefið til kynna að hún hyggist láta undan þrýstingi um að úthýsa mér. Ritskoðunarkröfur ná nefnilega ekki alltaf fram að ganga, sem betur fer.

Ég hef líka fengið nokkrar fyrirspurnir um það hvort Eyjan hafi sett annan bloggara í minn stað í plássið mitt á Eyjunni, en ég hef síðustu vikurnar ekki verið eins sýnileg á Eyjunni og áður. Svo er ekki. Skýringin á þessum tilfæringum er sú að um mánaðamótin jan-feb, tilkynnti ég ritstjórn Eyjunnar að ég ætlaði að taka mér tveggja mánaða bloggfrí og vildi láta vita af því svo væri hægt að bjóða einhverjum virkari sætið mitt. Ég fékk strax svar um að ég fengi sætið mitt aftur um leið og ég óskaði eftir því. Sem ég hef nú gert með þeim árangri að óskin var uppfyllt tafarlaust.

Semsagt, kröfur nokkurra dólgafeminista um að skrif mín um feminisma verði ritskoðuð eða bönnuð, munu ekki ná fram að ganga. Ég hef  heldur engar áhyggjur af því að þau fækki flettingum á Kvennablaðinu enda hafa feministapistlarnir mínir jafnan fengið mikinn lestur.

Þessu tengt:

Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Stefna HÍ

einar-stefna-hi.pdf

54 ár ago

Hvað gerðist á jóladag?

Helgisagan um fæðingu Jesú er á þessa leið: Ágústus keisari vill taka manntal og Jósef…

54 ár ago

Fréttir vikunnar – KSÍ skýrslan og ritstuldur Seðlabankastjóra

Ég var beðin um stutt fréttarant fyrir Lífið á Fréttablaðinu í dag. Þetta hef ég…

54 ár ago

Þegar málshættir afbakast

Gefum okkur að "rétt mál" sé það sem málsamfélagið kemur sér saman um. Látum andartak…

54 ár ago

Endurhæfing Skúla Gunnlaugssonar

Sumarið 2020 var þáverandi yfirlæknir Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Skúli Tómas Gunnlaugsson, sviptur starfsleyfi vegna margháttaðra afglapa…

54 ár ago

Píkubollar

Margur karlinn er svo heillaður af dindlinum á sér að hann finnur sig knúinn til…

54 ár ago