Hatrið í garð feminista hefur ekki farið fram hjá neinum sem fylgist með umræðunni. Fúkyrðaflaumur og ofbeldisórar virka að vísu ekki vel til þess að breyta skoðunum neins en þetta virkar hinsvegar prýðisvel til þess að draga athyglina frá því sem þessar konur segja og að því hatursfulla skítkasti sem þær sitja undir. Sem er nú varla markmið þeirra viskubrunna sem beita fyrst og fremst persónuníði í málflutningi sínum.
En hver er ástæðan fyrir þessari óbeit? Oft hafa feministar skýrt þetta með því að körlum, einkum valdakörlum, standi ógn af kvenhyggjukonum af því að þær séu að breyta samfélaginu. Þetta stenst ekki skoðun. Í fyrsta lagi eru kvenhyggjusinnar ekki að breyta neinu sem skiptir máli. Feministar eru ekki að brjóta upp valdakerfið (ranglega kallað „feðraveldið“) heldur að reyna að yfirtaka það. Fleiri konur í valdastétt gætu vissulega ógnað völdum nokkurra karla, en það eru ekki valdakarlar sem lýsa órum sínum um að missa hnefann í andlit Hildar Lilliendahl eða nauðga Sóleyju Tómasdóttur, heldur valdalausir vesalingar. Auk þess stafar valdakörlum meiri ógn af öðrum valdakörlum en af kvenhyggjukonum en þeir gera samt ekki út fávita til að senda körlum hótunarbréf. Eða ef svo er þá halda hatursþolar úr hópi valdakarla þeim bréfum leyndum.
Vissulega er til fólk sem óttast feminista. Ég er t.d. dauðhrædd við þetta fólk. Ekki sem persónur, heldur hef ég áhyggjur af áhrifum hreyfingarinnar innan réttarkerfisins og því að við fáum þennan ófögnuð inn í grunnskólana í formi kynjafræðslu. Mér finnst þó fáránlegt að reyna að díla við þetta vandamál með því að beina andúð á vondri hugmyndafræði að einstaklingum eða reyna að þagga niður í kvenhyggjufólki, þvert á móti vil ég að þau opinberi skoðanir sínar sem víðast svo almenningur átti sig á því hvað er að gerast.
Það er tilgangslaust að spyrja þolandann hversvegna aðrir leggi fæð á hann. Það er hinsvegar reynandi að spyrja hatursmennina sjálfa. Þegar búið er að skafa burt skítkastið og ofbeldisórana standa skýringarnar eftir. Skýringar sem réttlæta ekki með neinu móti þessa framkomu en varpa kannski ljósi á það hversvegna feministar eru hataðir. Flestir gefa þær skýringar að feministar séu öfgafullir, óbærilega leiðinlegir og hati karla.
Sóley Tómasdóttir auglýsti hvað eftir annað eftir dæmum um öfgar feminista á umræðukerfi DV um helgina. Nú tel ég öfgar ekki vera vandamál í sjálfu sér. Öfgar eru bara það sem víkur frá norminu og það getur vel verið jákvætt. Öll mannréttindamál hafa í fyrstu verið talin til öfga. Ég kýs fremur að tala um ofstæki. Í almennri umræði hefur það sömu merkingu og öfgar svo ég býst við að hatursmennirnir myndu fallast á að nota það.
Ofstæki feminsta felst fyrst og fremst í því að ganga út frá hugmyndum sem ekki eru í neinu samræmi við þann veruleika sem flestir lifa í en þar er miðlæg sú hugmynd að karlar reyni alltaf að kúga konur. Ég hef margsinnis bent á dæmi um ofstopafulla nálgun, (auk dæma um tvískinnung, ýkjur og rangfærslur) en þau virðast gleymast jafnóðum. Því er upprifjunar þörf. Hér eru nokkur dæmi um ofstæki feminista:
Þetta eru bara nokkur dæmi en engan veginn tæmandi listi. Ég tók þetta saman bara svo þetta sé til á einum stað næst þegar einhver feministinn skilur ekkert hvað átt er við með öfgum og ofstæki. Ef lesendur vilja bæta einhverju við má gera það á umræðukerfinu eða senda mér tölvupóst og ég bæti þá inn í færsluna ef mér þykja ábendingarnar eiga heima hér. Einnig þætti mér gott að fá svör við því hvort lesendur telja svona samantekt gagnlega og hvort þeir telja þörf á að svipaðri samantekt um tvískinnung feminista.
Að lokum skal tekið fram að ég nenni ekki að svara neinum skætingi um að með því að viðurkenna að ofstæki þrífist í kvenhyggjuhreyfingunni sé ég að styðja viðbjóðslegar hótanir eða ofbeldishúmor.
Helgisagan um fæðingu Jesú er á þessa leið: Ágústus keisari vill taka manntal og Jósef…
Ég var beðin um stutt fréttarant fyrir Lífið á Fréttablaðinu í dag. Þetta hef ég…
Gefum okkur að "rétt mál" sé það sem málsamfélagið kemur sér saman um. Látum andartak…
Sumarið 2020 var þáverandi yfirlæknir Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Skúli Tómas Gunnlaugsson, sviptur starfsleyfi vegna margháttaðra afglapa…
Margur karlinn er svo heillaður af dindlinum á sér að hann finnur sig knúinn til…