Kyn & klám

Kynbundið ofbeldi

Hér er dæmi um kynbundið ofbeldi sem enginn áhugi er fyrir þar sem það beinist ekki að réttu kyni.

Hugtakið kynbundið ofbeldi er oft notað um allt ofbeldi sem karlar beita konur hvort sem það hefur eitthvað með kyn að gera eða ekki. Almennur skilningur á hugtakinu er sá að það eigi við um ofbeldi sem fólk yrði ekki fyrir ef það tilheyrði hinu kyninu og það er þannig sem það er notað í fjölmiðlum. Samt sem áður aðeins um ofbeldi gegn konum.

Ég hef ekkert orðið vör við áhuga á málefnum barnafanga. Það sama á við um Gueatanamo. Það eru aðallega karlmenn þar og ég hef aldrei nokkurntíma heyrt talað um meðferðina á þeim eða öðrum samviskuföngum sem „kynbundið“ ofbeldi. Þeir sem hafa áhuga á Guatanamo hafa áhuga á málefnum samviskufanga óháð kyni. Ég verð stöku sinnum vör við áhuga á Guatanamo en það segir kannski sitt að bókin um Guatanamo sem kom út 2008 eða 2009 seldist ekki nema í 400 eintökum þrátt fyrir brjálæðislega góða kynningu.

Ekki svo að skilja að mér finnist nein þörf á því að tala um það sem kynbundið en mér finnst ömurlegt þegar hamrað er á ofbeldi gegn konum eins og það sé miklu verra vandamál en ofbeldi gegn körlum. Ofbeldi á einfaldlega ekki að eiga sér stað og allra síst af hálfu yfirvalda.Ég sé umfjöllun um kynbundið ofbeldi á hverjum einasta degi. Aldrei nokkurntíma hefur sú umfjöllun snúist um karlmenn. Og það er bara ekki rétt sem haldið er fram að  nauðganir hafi verið þaggaðar í hel þar til fyrir 15 árum. Það er bara ekki fyrr en síðustu árin sem hefur verið klæmst á þeim eins og þær séu eina vandamálið í heiminum.

Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Stefna HÍ

einar-stefna-hi.pdf

54 ár ago

Hvað gerðist á jóladag?

Helgisagan um fæðingu Jesú er á þessa leið: Ágústus keisari vill taka manntal og Jósef…

54 ár ago

Fréttir vikunnar – KSÍ skýrslan og ritstuldur Seðlabankastjóra

Ég var beðin um stutt fréttarant fyrir Lífið á Fréttablaðinu í dag. Þetta hef ég…

54 ár ago

Þegar málshættir afbakast

Gefum okkur að "rétt mál" sé það sem málsamfélagið kemur sér saman um. Látum andartak…

54 ár ago

Endurhæfing Skúla Gunnlaugssonar

Sumarið 2020 var þáverandi yfirlæknir Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Skúli Tómas Gunnlaugsson, sviptur starfsleyfi vegna margháttaðra afglapa…

54 ár ago

Píkubollar

Margur karlinn er svo heillaður af dindlinum á sér að hann finnur sig knúinn til…

54 ár ago