Gestapistlar & viðtöl

Gestapistill vegna ummæla Guðrúnar Betu Mánadóttur

Mér hefur borist bréf sem ég fékk leyfi til að birta sem gestapistil

Komdu sæl Eva

Ég las pistil Maríu Lilju Þrastardóttur sem birtist á Smugunni 18/04/2012 um drottningarviðtal við þig í Silfri Egils og í framhaldinu pældi ég í gegnum spjallþræðina. Þar hnaut ég um röksemdarfærslu frá Guðrúnu Betu Mánadóttur sem fór fyrir brjóstið á mér. Ég er ekki á Smettinu og gat því ekki tekið þátt í spjallinu en mig grunar að þessi rök eigi eftir að heyrast aftur og langaði því að senda þér eftirfarandi hugleiðingu.

Smugan: Guðrún Beta Mánadóttir (20/04/2012 kl. 9:22):

Eva Hauksdottir Hvar var ég að gera lítið úr þrælahaldi? Það er bara einfaldlega staðreynd að þrælahald innan kaffigeirans er mikið til tilkomið vegna þess heimshluta sem kaffið er ræktað í en ekki vegna greinarinnar sjálfrar. Ef að kaffi væri t.d ræktað í Bretlandi að þá væri ekki þrælahald í þeim iðnaði. Mansal í vændisiðnaði er aftur á móti ekki tengt heimshluta heldur á það sé stað um allan heim. þannig að þetta er bara ekkert sambærilegt hjá þér.

Í samanþjöppuðu formi mætti setja röksemdarfærsluna þannig upp:
1. Þrælahald tíðkast í ákveðnum heimshluta.
2. Kaffibaunir eru ræktaðar í þessum heimshluta.
3. Þess vegna er þrælahald í kaffibaunarækt.

Hér er staðsetning framleiðslunnar orðin skýringin á þrælahaldi eins og það mótist af „viðteknum venjum“  í kaffiræktunarlöndunum en ekki af uppbyggingu greinarinnar.  GBM hnykkir á „staðsetningarrökunum“ með því að segja að ef kaffiræktin væri tekin úr sínu umhverfi og flutt til Vesturlanda yrði þrælahaldið afnumið vegna þess að löggjöf um aðbúnað og réttindi launafólks á Vesturlöndum heimili ekki þrælahald.

Við þetta er margt að athuga.

Valdahlutföllin innan kaffigeirans lýsa sér í því að verð á kaffibaunum er svo lágt að starfsfólkið í ræktunarlöndunum fær aðeins hungurlús til þess að framfleyta sér. Virðisaukinn í greininni verður til annars staðar og víðsfjarri ræktuninni. Seljendur kaffibauna eru smábændur, kaupendurnir eru risafyrirtæki. Bændurnir eiga ekki nokkurn möguleika á að fá sómasamlegt verð fyrir hráefnið. Uppbygging greinarinnar hefur í för með sér að kaffirækt mun aldrei verða arðbær á Bretlandi – nema með því að heimila þrælahald!

Þessi mynd er enn skýrari í kakóbaunarækt sem er einsleitari en ræktun kaffibauna. Það er engum vafa undirorpið að þrælahald á kakóekrunum stendur undir súkkulaðiáti Vesturlanda. Og aftur er valdastrúktúr greinarinnar um að kenna. Dreifing kakósmjörs og framleiðsla súkkulaðis á heimsvísu er einokuð af fáeinum risafyrirtækjum sem í krafti yfirburðastöðu sinnar hafa jafnt og þétt tekið meira til sín af virðisaukanum í greininni.  Nú er svo komið að hráefnisframleiðendurnir fá svo lítið í sinn hlut að ræktunin er ekki rekin öðru vísi en með þvinguðu vinnuafli. T.d. er kakóbaunarækt á Fílabeinsströndinni rekin með barnaþrælkun. Þannig hefur það ekki alltaf verið. Fyrir 60 árum fengu hráefnisframleiðendurnir miklu meira fyrir kakóbaunirnar en þeir gera í dag

Við þetta má bæta að þrælahald verður ekki hótinu skárra þótt það sé langt í burtu og bundið við ákveðna heimshluta. Fólki í fátækum löndum finnst þrælahald ekkert síður svívirðilegt en fólki í Reykjavík. Það er hungur sem neyðir það til þess að sætta sig við afarkosti og selja börnin sín í ánauð.

Með kveðju,
Guðmundur Guðmundsson

Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Stefna HÍ

einar-stefna-hi.pdf

54 ár ago

Hvað gerðist á jóladag?

Helgisagan um fæðingu Jesú er á þessa leið: Ágústus keisari vill taka manntal og Jósef…

54 ár ago

Fréttir vikunnar – KSÍ skýrslan og ritstuldur Seðlabankastjóra

Ég var beðin um stutt fréttarant fyrir Lífið á Fréttablaðinu í dag. Þetta hef ég…

54 ár ago

Þegar málshættir afbakast

Gefum okkur að "rétt mál" sé það sem málsamfélagið kemur sér saman um. Látum andartak…

54 ár ago

Endurhæfing Skúla Gunnlaugssonar

Sumarið 2020 var þáverandi yfirlæknir Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Skúli Tómas Gunnlaugsson, sviptur starfsleyfi vegna margháttaðra afglapa…

54 ár ago

Píkubollar

Margur karlinn er svo heillaður af dindlinum á sér að hann finnur sig knúinn til…

54 ár ago