Kyn & klám

Hver er tilgangurinn með þessari nauðgaraumræðu?

Þessar stórkostlegu forvarnartillögur komu fram í tengslum við druslugönguna og nú skýtur þeim aftur upp. Varla er neinn svo vitlaus að halda að þessi snepill hafi raunverulegt forvarnagildi svo ég bara auglýsi eftir tilganginum með þessum skrifum.

Það gildir um flesta ef ekki alla flokka andfélagslegrar hegðunar að til þess að uppræta hana og fyrirbyggja þarf að nálgast gerendur og þá sem eru í áhættuhópi af meðúð og virðingu. Já ég sagði það, meðúð og virðingu. Það er nefnilega hægt að sýna fólki skilning  þótt maður samþykki ekki tiltekna þætti í fari þess og leggi ekki blessun sína yfir  skaðlega hegðun.

Meðferð afbrotamanna byggist fyrst og fremst á því að fá þá til að horfast í augu við sjálfa sig og skilja bæði afleiðingar gjörða sinna og hvatann á bak við skaðlega hegðun. Það er ekki gert með því að hæðast að afbrotamönnum eða gefa í skyn að allir karlar séu líklegir til að fremja kynferðisglæpi við hvaða aðstæður sem er. Þetta vita allir sem hafa lágmarks skilning á mannlegu eðli, svo ég spyr enn og aftur hver er tilgangurinn með því að birta þessa upptalningu? Því hann er augljóslega ekki sá að draga úr tíðni og alvarleik kynferðisofbeldis.

Uppfært: Tengillinn á þessi frábæru forvarnarráð er ekki lengur virkur en sömu eða samskonar snilld er að finna hér.

Eva Hauksdóttir

Share
Published by
Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Hvað gerðist á jóladag?

Helgisagan um fæðingu Jesú er á þessa leið: Ágústus keisari vill taka manntal og Jósef…

54 ár ago

Fréttir vikunnar – KSÍ skýrslan og ritstuldur Seðlabankastjóra

Ég var beðin um stutt fréttarant fyrir Lífið á Fréttablaðinu í dag. Þetta hef ég…

54 ár ago

Þegar málshættir afbakast

Gefum okkur að "rétt mál" sé það sem málsamfélagið kemur sér saman um. Látum andartak…

54 ár ago

Endurhæfing Skúla Gunnlaugssonar

Sumarið 2020 var þáverandi yfirlæknir Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Skúli Tómas Gunnlaugsson, sviptur starfsleyfi vegna margháttaðra afglapa…

54 ár ago

Píkubollar

Margur karlinn er svo heillaður af dindlinum á sér að hann finnur sig knúinn til…

54 ár ago

Frændi minn Michael Hauksdóttir er látinn

Árið 2014 sendi lögmaðurinn Max Gracia Kanasa i Benín mér tölvupóst í gegnum Yahoo netfangið…

54 ár ago