![halloween](http://www.norn.is/eva/wp-content/uploads/sites/36/2021/10/dreamstime_m_195810406.jpg)
![puki1](http://www.norn.is/eva/wp-content/uploads/sites/36/2021/10/puki1.jpeg)
Ég búning sem er næstum eins og þessi.Ég keypti hann í erótískri búð í Reykjavík. Ég hef notað hann einu sinni. Ekki í kynlífsleik heldur á grímuballi. Þetta er nefnilega grímubúningur en ekki hórugalli.
![pukastelpa2](http://www.norn.is/eva/wp-content/uploads/sites/36/2021/10/pukastelpa2.jpg)
Þessi stelpa er að fara á grímuball. Hún er að leika púkastelpu. Ekki klámstjörnu.
Grímubúningar fyrir konur fást í erótískum búðum. Lögguskvísur, fangaskvísur, englaskvísur, púkaskvísur, sjóræningaskvísur, blómálfakvísur…
Ég veit ekki hvort búningar fyrir karlmenn fást í klámbúðum en hitt veit ég að grímubúningar lítilla drengja eru á sama hátt og grímubúningar lítilla telpna, eftirlíkingar af búningum fullorðinna. Það er ekkert nýtt og hefur ekkert með klámvæðingu að gera, ekki frekar en súkkulaði í hjartalaga kössum, sem ég hef líka keypt í klámbúð.
Þessir eru líka að fara á grímuball. Ekki í swingpartý.
Ótrúlegt, ekki satt?
![dracula](http://www.norn.is/eva/wp-content/uploads/sites/36/2021/10/dracula.png)