Kyn & klám

Hvað er þessi nauðgunarmenning?

Í viðtali við DV um daginn sagðist Hildur Lilliendahl telja að kynferðisofbeldi ætti sér sjaldan rót í hreinræktaðri illsku heldur í mannlegum eiginleikum sem hægt er að hafa stjórn á svosem eigingirn, yfirgangssemi og tillitsleysi. Ég held að þetta sé rétt hjá henni. En spáum líka aðeins í það hvaða orð við notum mest þegar við lýsum kynhvöt og kynhegðun. Íslenskan á gnægð orða sem tengja kynfrelsi við gleði, lífsnautn og sjálfstraust en gúggull vinur minn fullyrðir að við notum orð eins og graður og gredda mun oftar en frygð og tilkippileg. Drusla er algengara en öll jákvæð orð sem ég þekki um léttúðugar konur samanlagt.

Og spáið í eitt. Orðið „nauðgun“ gefur 1,350,000 leitarniðurstöður hjá google.
„Elskast“  gefur 19,400 niðurstöður,
„samfarir“ 98,000,
„kynmök“ 88,100
„sofa hjá“ 435,000

„kynlíf“ gefur 2,260,000 leitarniðurstöður, töluvert fleiri en „nauðgun“ en er það samt ekki dálítið umhugsuarvert hversu mikið við tölum um nauðganir? Og hér tek ég reyndar bara að tala um eina beygingarmynd af hverju orði og ekkert hægt að alhæfa út frá þessum tölum en ég held að hér sé samt ákveðin vísbending um að „nauðgunarmenning“ eigi kannski frekar við um samfélag sem er með nauðganir á heilanum en samfélag sem samþykkir nauðganir.

Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Hvað gerðist á jóladag?

Helgisagan um fæðingu Jesú er á þessa leið: Ágústus keisari vill taka manntal og Jósef…

54 ár ago

Fréttir vikunnar – KSÍ skýrslan og ritstuldur Seðlabankastjóra

Ég var beðin um stutt fréttarant fyrir Lífið á Fréttablaðinu í dag. Þetta hef ég…

54 ár ago

Þegar málshættir afbakast

Gefum okkur að "rétt mál" sé það sem málsamfélagið kemur sér saman um. Látum andartak…

54 ár ago

Endurhæfing Skúla Gunnlaugssonar

Sumarið 2020 var þáverandi yfirlæknir Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Skúli Tómas Gunnlaugsson, sviptur starfsleyfi vegna margháttaðra afglapa…

54 ár ago

Píkubollar

Margur karlinn er svo heillaður af dindlinum á sér að hann finnur sig knúinn til…

54 ár ago

Frændi minn Michael Hauksdóttir er látinn

Árið 2014 sendi lögmaðurinn Max Gracia Kanasa i Benín mér tölvupóst í gegnum Yahoo netfangið…

54 ár ago