Stjórnlagaráð, kynjakvótar og jafnt vægi atkvæða

Eins og sjá má í Áfangaskjali stjórnlagaráðs er lagt til að setja megi „í lög ákvæði um lágmarkshlutfall karla og kvenna“ í kosningum til Alþingis.  Svo virðist sem flest stjórnlagaráðsfólk geri sér ekki grein fyrir að með þessu er brotið gegn þeirri grundvallarreglu sem flestir virðast vera sammála um í orði, nefnilega að öll atkvæði eigi að vega jafnt í kosningum til Alþingis. Halda áfram að lesa

Einn maður eitt atkvæði — en sum atkvæði vega þyngra en önnur

Í þessari frétt segir meðal annars:  „Sú nefnd stjórnlagaráðs sem fjallar um kjördæmaskipan og þingkosningar leggur til talsverðar breytingar á fyrirkomulagi kosninga til Alþingis og vill að atkvæði kjósenda alls staðar á landinu vegi jafnt líkt og þjóðfundur lagði mikla áherslu á.“ Halda áfram að lesa