Sögnin að fatlast hefur nokkrar merkingar, þar á meðal að forfallast (fatlast frá verki) og að skaðast eða meiðast. Það er væntanlega það sem Vigdís Finnbogadóttir átti við þegar hún sagði að RÚV hefði fatlast svolítið. Að orðið þýði líka að missa einhverja hæfni sem venjuleg er meðal fólks gerir ekki að verkum að orðið geti ekki lengur haft hinar merkingarnar, auk þess sem það getur með engu móti verið niðrandi fyrir fatlað fólk að talað sé um að stofnanir fatlist.
Það er þess vegna hrein og klár frekja að ætlast til að fólk hætti að nota þetta orð öðru vísi en sjálfskipuðum rétttrúnaðarlöggum þykir við hæfi. Fatlað fólk getur verið frekjur eins og annað fólk, og það er hið besta mál. Það er hins vegar vont ef svoleiðis frekjum tekst að fatla umræðuna með þeirri frekju sinni.