Rökþrot rasistans

Æ séra Skúli, óttalega er þetta nú lélegt. Röksemdafærslan sem þú setur upp í þessum rökbanka þínum er í flestum tilvikum út í hött. Það eru ekki rök að vitna sífellt í möntruna.

En nú má séra kjánakollur æfa sig. Kannski kemur að því að hann áttar sig á því hvað orðið „rök“ merkir.

Hvers vegna verða hvít lönd að leyfa innflytjendur?
-Vegna þess að fólk á að njóta ferðafrelsis. Fólk á ekki að vera dæmt til þess að lifa við aðstæður sem það er ósátt við bara af því að það fæddist á ákveðnum stað á jörðinni. Fólk á að geta búið þar sem því bara sýnist.

Hversvegna ætti Japan ekki alveg eins að taka við innflytjendum?
-Öll lönd ættu að leggja niður landamæri sín. Ef þú hvetur Japani til að gera það þá styð ég þig heilshugar.

And-hvítir þykjast eiga í vandamálum með að bera kenni á þá sem eru hvítir.
-Skúli það eruð þið sem eruð að búa til vandamál. Þið eruð nefnilega með allt aðra skilgreiningu á kynþáttum en annað fólk. Gyðingar telja sig t.d. hvíta, vísindamenn (þ.m.t. þeir sem gerðu rannsóknina í American Journal og Human Genetics, telja þá hvíta en kynþáttahatarar telja þá ekki hvíta. Það sama á við um fólk af slavneskum uppruna. Blendingar eru skráðir undir kynþætti lífmóður og það er ekki vandamál fyrir fjölmenningarsinna en það myndi flækja málin ef ætti að reka innflytjendastefnu á grundvelli kynþátta. Það yrði ekkert vandamál fyrir mig þótt dóttir serbneskrar konu (gerum ráð fyrir að móðir hennar eigi svartan föður og serbneska móður) og kínversks karls, segðist vera hvít. En myndir þú vilja veita henni ríkisborgararétt?

Einnig máttu gjarnan staðfesta hvort þú sérð það á Louis Theroux hvort hann er hvítur eða ekki. Tom Metzger datt allavega ekki í hug að hann væri Gyðingur.

Ég held að þetta sé nóg fyrir litla kjánakollinn þinn í bili.

Share to Facebook

One thought on “Rökþrot rasistans

  1. ————————————–
    Japan tekur líka alveg við innflytjendum, lögin hjá þeim eru samt frekar ströng. Það er helst stefna þeirra gagnvart flóttafólki sem hefur verið harðlega gagnrýnd.

    Það er samt eitt sem mig langar að vita: Hvar er hægt að sjá hvernig stuðningsmenn hvíta kynþáttarins skilgreina kynþættina? Hverjir, nákvæmlega, eru hvítir? Fer það algerlega eftir því hvernig fólk skilgreinir sig sjálft, eða er farið eftir erfðum, þjóðerni eða einhverju öðru? Er farið eftir „One drop“ reglunni t.d.?

    Ég vildi bara vita þetta því ef á að kalla mann and-hvítan svikara til að byrja með, þá er alveg fínt að vita hverja maður er að svíkja.

    *Vitnar í möntruna*

    Posted by: Rebekka | 7.09.2011 | 7:02:52

    ————————————–

    Þessi var handtekinn í Saudi-Arabíu. Hvernig væri að athuga þetta með hans ferðafrelsi.

    http://www.dagbladet.no/2011/09/11/nyheter/mohyeldeen_muhammad/islamist/saudi-arabia/18059315/

    Posted by: Rétthugsun | 11.09.2011 | 11:59:38

    ————————————–

    Er ekki einmitt verið að athuga með hans ferðafrelsi?

    Posted by: Eva | 11.09.2011 | 18:59:01

    ————————————–

    Hann er handtekinn bara fyrir það eitt að hann vill læra Kóraninn í Saudi-Arabíu. Á það ekki að vera i lagi?

    Posted by: Rétthugsun | 11.09.2011 | 23:37:54

    ————————————–

    Ég sé allavega ekkert réttlæti í því að hefta ferðafrelsi hans út á það. Það er óheyrileg kúgun sem viðgengst í mörgum ríkjum muslima og ég er ekki hissa á að fólk flýi þaðan.

    Posted by: Eva | 11.09.2011 | 23:41:58

Lokað er á athugasemdir.