Asni dagsins

retardsÞetta samtal er tekið beint upp af einkamal.is, engu breytt, nema nöfnum, ekki einu sinni stafsetningu. Ég vissi að svona viðhorf væru við lýði en fólk sem flíkar þeim hefur haldið sig blessunarlega fjarri mér og það kemur hálfilla við mig að fá staðfestingu.

Eva: Stóriðjusinni?
Himneskt-n: af því marki að ég hef atvinnu af því
En ég er mikið að spá í að flytja suður aftur eða þar sem atvinnu að hafa
Eva: Nú? Ég hélt að þetta stórðiðjubrölt hefði átt að útrýma atvinnuleysi á Austurlandi. Er ekki allt fullt af útlendingum þarna vegna skorts á íslensku starfsfólki?
Himneskt-n: það ekki skortur á Íslendingum heldur er þeim vikið til hliðar til koma þessum helvítis Po´lverjum að og þrælvanir bílstjorar eru að missa vinnuna í staðin fyrir pólverja sem eru ekki vanir þessum hættulegu fjallvegum sem eru hérna það er engin skortur á Íslensku starfsfólki
Eva: Fá Pólverjarnir lægri laun?
Himneskt-n: jú en sammt eiga þeir ekki að taka af okkur vinnuna
Eva: Nei, það er satt. Ekki myndum við Íslendingar fara til annarra landa og taka vinnuna frá fólkinu þar þótt við fengjum 7 sinnum hærri laun en við eigum kost á hér.
Himneskt-n: nei mér fynnst líka að við ættum að hafa forgang í okkar heimalandi með vinnu og ekki láta þennan Po´lverja lýð vaða yfir okkur eins og farsótt

Ég held nú samt að heiðríkjan hjá þessum toppi þann himneska-n.

Gott ef Geir trónar ekki á toppnum á listanum yfir fífl mánaðarins með þeim ummælum sínum að Byrgiskonurnar hefðu nú kannski orðið óléttar hvort sem var.

 

Share to Facebook